Sema Erla Serdar segir lögreglu ekki hafa svarað fyrirspurnum hennar, né lögfræðings hennar, um hver staðan á máli hennar eftir að hún kærði konu sem réðst á hana og hótaði henni lífláti um verslunarmannahelgi fyrir tveimur árum síðan.
„Um verslunarmannahelgina voru tvö ár síðan ráðist var á mig með líkamlegu ofbeldi og ítrekuðum morðhótunum fyrir utan veitingastað í Reykjavík. Ástæðan fyrir árásinni var ég. Það er að segja hver ég er, hvaðan og hver lífssýn mín er. Ástæðan fyrir árásinni var rótgróið hatur á mér sem einstaklingi og fyrirlitning á því sem ég stend fyrir,“ segir Sema í færslu um málið á Facebook síðu sinni.
Sema nefnir konuna ekki á nafn í færslunni en Fréttablaðið fjallaði um málið á sínum tíma. Sema hafði þá sakað Margréti Friðriksdóttur um að hafa ráðist á sig fyrir utan veitingastaðinn Benzin á Grensásvegi. Sema segist ekki hafa slasast þar sem maður sem var með henni tókst að halda aftur af henni.
Margrét viðurkenndi að hafa „ýtt við“ Semu en „þó ekki fast“ og kallað hana „illa inrætta manneskju sem væri að haga sér eins og norn“ eftir að hún komst að því að Sema „væri að dreifa alls kyns lygasögum“ um sig. Þá sagðist hún hafa beðist afsökunar daginn eftir og væri hætt að drekka.
Fór með sönnunargögn til lögreglu
Sema greinir frá því í færslunni að hún hafi farið með nokkra tugi af útprentuðum blöðum sem sýndu ummæli Margrétar í hennar garð síðustu ár auk þess sem hún tók skjáskot af umræðu Margrétar þar sem hún viðurkenndi verknaðinn.
„Núna, tveimur árum síðar, er málið ennþá á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, svo best sem ég veit,“ segir Sema og bætir við að henni hafi ekki verið tilkynnt um að málið hafi verið fellt niður. Hún vísar til þess að Margrét hafi verið boðuð í skýrslutöku í desember á síðasta ári.
Hún lýsir því að hún hafi setið undir árásum og ofbeldi á netinu frá Margréti og stuðningsmönnum hennar en að sögn Semu er það vegna vinnubragða lögreglu og sé með öllu óásættanlegt. „Lögreglan og löggjafinn í landinu verða að gera miklu betur í að vernda þolendur hatursorðræðu, hatursglæpa, rasisma, fordóma og útlendingaandúðar,“ segir Sema.
Má ekki leyfa hatursglæpum að viðgangast
„Þegar þú ætlar að beita einhvern líkamlegu ofbeldi og hótar ítrekað að drepa einstakling vegna þess hver hann er, hvaðan hann kemur og hver lífssýn hans er, er ásetningurinn sá að skaða einhvern sem þér hugnast ekki og þú sérð mögulega sem einhvern óvin (sem þú hefur sjálfur búið til) eða ógn við þig, þín gildi, þína trú og skoðanir. Ástæðan fyrir slíku er hatur og öfgar og sú trú að þú hafir rétt á því að beita aðra ofbeldi vegna stöðu þinnar og annarra sem þú telur þig vera yfir hafna í samfélaginu. Slíkt er hatursglæpur. Það er stórhættulegt ef við ætlum sem samfélag að leyfa slíku að viðgangast,“ segir hún enn fremur.
Hún segir að um sé að ræða „stórhættulegt samfélagsmein“ og að nauðsynlegt sé að lögreglan og löggjafinn séu með þolendum í liði.
„Þessir aðilar þurfa að gera miklu miklu betur í að vernda þolendur þess ofbeldis sem fordómar, hatur og rasismi er í stað þess að ýta undir það eins og í mínu tilfelli og mun fleiri tilfellum og taka þar með þátt í því að normalísera það! Fyrsta skrefið er að hlusta á okkur, reyna að skilja okkur og taka því ofbeldi sem við verðum fyrir alvarlega og láta ofbeldisfólkið taka afleiðingum þess að beita annað fólk ofbeldi þegar við tilkynnum það! Er virkilega til of mikils ætlast með því?“ segir Sema að lokum.