Segir kirkjurnar of margar og hvetur Þjóð­kirkjuna til að selja

Inga Auð­björg Straum­land, for­maður Sið­menntar, segir kirkjur landsins of margar og leggur til að Þjóð­kirkjan selji. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Inga segir að hægt sé að endur­nýta kirkjur sem sam­komu­hús, gisti­heimili, veitinga­staði eða jafn­vel heimili ein­stak­linga.

„Það liggur í augum uppi að ef þjóð­kirkjan getur ekki haldið við öllu sínu hús­næði fyrir þær gífur­legu upp­hæðir sem hún fær þá verður hún að taka til í rekstrinum,“ segir Inga.

Hún segir margar kirkjur gömul og fal­leg hús sem eigi skilið að vera við­haldið. Hins vegar sé sí­felldur þrýstingur frá þjóð­kirkjunni á að fá peninga til að við­halda kirkjum og kvartað undan við­halds­kostnaði í um­sögnum.

Hún segist skilja til­finningar fólks í garð kirkna. Sjálf væri hún ekki til í að sjá Al­þingis­húsið verða að hóteli.

„Þetta eru samt bara byggingar og það má breyta hlut­verki þeirra. Hægt er að gera það með virðingu,“ segir hún. Þetta hafi lukkast vel er­lendis.

Viðtal Fréttablaðsins við Ingu.