Segir Hring­braut ekki eiga skilið að kyssa á sér rassinn

Sam­fé­lags­miðla­stjarnan Camila Rut virðist vera ó­sátt við frétta­flutning af meintum vin­slitum síns og sam­fé­lags­miðla­stjörnunnar Sól­rúnar Diego, ef marka má færslur hennar á sam­fé­lags­miðlinum Insta­gram.

Þar segist hún með fullri virðingu vilja smá segja Hring­braut að kyssa á sér rassinn fyrir ó­fag­mann­lega frétta­mennsku og til­búning.

„En þau eiga ekki einu sinni skilið að kyssa rassinn á mér,“ skrifar sam­fé­lags­miðla­stjarnan svo. „Það eru for­réttindi að fá að kyssa stóra, feita rassinn á mér.“

Sjá einnig: Um þetta snýst ó­sætti Sól­rúnar og Camillu: „Hún er að bíða eftir af­sökunar­beiðni“

Orð­rómur um meint vin­slit stjarnanna fór á flug á dögunum þegar glöggir fylgj­endur fóru að undrast það að dívurnar voru hættar að minnast hvor á aðra í færslum auk þess sem að gagn­kvæm stöðluð læk gufuðu upp. Það var afar ó­venju­legt enda hafði ekki liðið sá dagur án þess að hlýjar hefðu ekki flogið milli.

Sól­rún fagnaði þrí­tugs­af­mæli sínu í gær með eins­konar drauma­þrennu á­hrifa­valdsins; kampa­víni, nýjum veitinga­stað sem þarf að aug­lýsa sig og heim­sókn í spa.

Sjá einnig: Sól­rún Diego fagnar þrí­tugs­af­mæli sínu í kvöld - Camillu Rut hvergi að sjá

Lúxusnum, sem var að sjálf­sögðu gerð góð skil á Insta­gram-reikningi Sól­rúnar en æstir að­dá­endur gátu líka fylgst með á reikningum annarra á­hrifa­valda. Fór þar fremst í flokki Fendi-fljóðið Lína Birgitta sem lýsti upp hjörtu að­dá­enda með myndum af dýrðinni.

Að­dá­endur stjarnanna voru fljótir að spyrja sig hinnar á­gengu spurningar þegar myndir úr af­mæli Sól­rúnar fóru að birtast: „Hvar er Camilla Rut“?

Sjá einnig: Drama í heimi á­hrifa­valda: Hvað gerðist milli Sól­rúnar Diego og Camillu Rutar?