Sjónvarpskonan fyrrverandi Guðrún Dís Emilsdóttir hugar að vistaskiptum að sögn Reynis Traustasonar ritstjóra Mannlífs.
Hún hefur búið á Húsavík undanfarin ár og mun vera byrjuð að pakka niður fyrir flutninga frá bænum. Eiginmaður hennar, Kristján Þór Magnússon, hefur gegnt starfi sveitarstjóra Norðurþings en er nú í ótímabundnu veikindaleyfi samkvæmt Mannlífi.
Guðrún Dís á að baki langan feril í fjölmiðlum og var lengi vinsæl útvarpskona og segir í frétt Mannlífs að margir vonist til að flutningarnir séu til vísbendingar um að hún ætli sér aftur í fjölmiðlaheiminn.