Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hélt í dag áfram gagnrýni sinni á stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum hinsegin fólks. Hana gerði hann einnig að umtalsefni sínu í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á fyrsta þingfundi þessa þings. Í pistli sem hann birti á heimasíðu sinni í dag segir hann ríkisstjórnina „drífa“ mál sem þessi „í gegn“ án þess að leyfa almennilega umræðu um þau.
Hann segir til að mynda að ríkisstjórnin hafi innleitt lög um kynrænt sjálfræði án nokkurrar umræðu í samfélaginu. „Ef fólk getur sjálft skilgreint kyn sitt fyrirvaralaust, hvað þýðir það þá t.d. um þátttöku fyrrverandi karla í íþróttum kvenna, aðgang að salernum, búningsklefum, kvennafangelsum o.s.frv.? Þessum spurningum sem mikið eru ræddar víða annars staðar var ósvarað þegar ríkisstjórn Íslands dreif málið í gegn,“ skrifar hann.
„Nú er haldið áfram án umræðu og fyrir liggja ný frumvörp m.a. um að taka orðin „móðir“ og „kvenmaður“ úr lögum. Orð sem þóttu jákvæð og falleg,“ segir hann en vísar þar væntanlega líka til frumvarps sem á að tryggja réttindi barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Það frumvarp gerði hann að umfjöllunarefni í fyrrnefndri ræðu sinni á þingi og sagði það „óhugnanlegt“ og kallaði það „aðför að framförum og vísindum“.
Í pistlinum segir Sigmundur að umræða um þessi mál sé þögguð niður: „Ímyndarstjórnmál samtímans eru til þess fallin að fordæma og þagga niður alla umræðu um svona mál.“ Þá segir hann marga femínista „hafa mátt þola hreinar árásir fyrir að spyrja spurninga um þróunina og setja hana í samhengi við réttindi kvenna.“
Þessar konur segir hann að séu uppnefndar „terfur“ (TERF – Trans Exclusionary Radical Feminist) en meðal frægustu „fórnarlamba slíkra árása“ sé J.K. Rowling.