Segir frá and­láti mannsins síns og að­gerðar­leysi Spán­verja: Svörin eru bara „þetta tekur tíma““

„Fréttirnar eru ein­fald­lega þær að það eru engar endan­legar fréttir enn sem komið er,“ segir Drífa Björk Linnet, en hún segir frá því á Insta­gram reikningi sínum hvernig and­lát eigin­manns hennar á Tenerife bar að fyrr á árinu.

Það var þann 6. febrúar þegar fjöl­skyldan vaknar við að það sé kominn upp eldur í húsi þeirra á Tenerife. „Eftir að Sara Jasmín elsta dóttir mín vaknar og hleypur í panikki út og nánast inn í eldinn – kallar hún á mig að það sé kviknað í,“ segir Drífa.

Drífa hringir því í slökkvi­lið og lög­reglu sem ná að ráða niður­lögum eldsins. „Þegar það er búið, koma þeir til mín og segjast hafa fundið manninn minn í einni af tveimur bif­reiðum í bíl­skúrnum og hafi hann strax verið úr­skurðaður látinn,“ segir hún.

Því næst fer hún upp á lög­reglu­stöð þar sem skýrsla er tekin af fjöl­skyldunni og þaðan fer hún að leita að hótel­her­bergi. Enda var húsið ó­í­búðar­hæft og bílarnir ó­nýtir.

„Á meðan ég er að reyna að finna hótel, vissu börnin ekkert og spurðu í sí­fellu hvort ég ætlaði ekki að hringja í pabba þeirra og segja honum að það hafi kviknað í. Eftir að ég er búin að inn­rita mig á hótelið segi ég börnunum fréttirnar um að pabbi þeirra sé dáinn,“ segir Drífa.

Skýrslan var í tölu­verðan tíma á borði dómara. En dómari þurfti að sam­þykkja hana áður en málið færi lengra. Ef dómarinn hafnaði skýrslunni þyrfti að rann­saka málið betur.

Á næstu þremur mánuðum eyddi fjöl­skyldan tímanum á hóteli, á­samt móður Drífu. Drífa pressaði á Spænsk yfir­völd um það hvað hefði gerst og hve­nær hún gæti jarðað mann sinn.

Það var síðan eftir þessa þrjá mánuði sem Drífa fékk nóg og flutti til Ís­lands. „Að þessum 3 mánuðum loknum var ég komin með nokkurn vegin mynd á hvað hefði gerst þessa nótt en þó ekki komin með full­nægjandi svör hvort ég mætti taka hann með mér og því gat ég ekki gert börnunum það lengur að búa við þessar að­stæður og á­kveð að bóka okkur til Ís­lands.“

And­lát manns Drífu var ekki sjálfs­víg og bar ekki að með sak­næmum hætti. Það var stað­fest tveimur vikum eftir and­látið.

Ekki enn vitað hvernig eldurinn kviknaði

„Svo nú er verið að rann­saka upp­tök eldsins. Hvaðan kom eldurinn ef Halli kveikti ekki í sjálfur, né ein­hver annar? Getur það verið vindill eða of­hitnaði bíllinn? Þeir eru ein­fald­lega ekki búnir enn að átta sig á því og því er málið enn til rann­sóknar,“ segir Drífa.

„Öryggis­mynda­vélar voru skoðaðar bæði sem eru alls staðar á húsinu okkar og í götunni okkar og þar sést mjög greini­lega að Halli kom einn heim seint um nóttina, lykla­laus og vildi senni­lega ekki vekja okkur og hann sest inn í bíl, ræsir vélina, kemur sér fyrir í sætinu og leggur sig.“

Tuttugu mínútum síðar fer hann aftur að húsinu, en snýr aftur að bílnum og sofnar þar. Tveimur klukku­stundum síðar kemur reykur frá bílnum og síðan sprenging. „Þá vöknum við öll og mar­tröðin hefst sem við erum enn í,“ segir Drífa.

Drífa hefur verið í sam­bandi við fjöldann allan af lög­fræðingum. Hún segir alla vera að gera sit besta og að allir séu að reyna að flýta fyrir málinu. „„Svörin eru bara „þetta tekur tíma“ ég hef ekki geta sætt mig við það en núna er svo komið að ég verð geð­heilsu minnar og barnanna vegna að sætta mig við það svar og bíða bara,“ segir hún.

Drífa hefur ekki enn fengið jarð­neskar leifar eigin­mannsins. „Svörin eru bara „þetta tekur tíma“ ég hef ekki geta sætt mig við það en núna er svo komið að ég verð geð­heilsu minnar og barnanna vegna að sætta mig við það svar og bíða bara,“ segir hún.

Minningar­at­höfn verður haldin 23. ágúst næst­komandi en þá hefði Halli orðið fimm­tugur.