Segir fólk láta renna heitt vatn í óeinangraðar skeljar allt árið um kring

Fiskikóngurinn Kristján Berg Ásgeirsson sem er einn stærsti heita potta sali landsins svarar fyrir söluna og vinsældar heitra potta ávef Fréttablaðsins í áhugaverðu viðtali.

Á meðan rætt er um að loka sundlaugum vegna kuldakasts hafa aldrei eins margir Íslendingar átt heitan pott til einkanota og er líklegt að það hafi haft sitt að segja.

Kristján segist fara reglulega í sund og hafa áhyggjur af stöðu heita vatnsins eins og allir aðrir.

„Fólk heldur að heitt vatn sé ó­þrjótandi auð­lind, en það er alls ekki þannig,“ segir Kristján sem segir rafmagnspottaeigendur hinsvegar í toppmálum.

Hann segir hið galnasta þó þá sem hafi keypt óeinangraðar skeljar og láti renna í þær heitu vatni allt árið um kring.

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.