Segir eitt­hvert undar­legt upp­lausnar­á­stand ríkja

Leiðara­höfundur Morgun­blaðsins segir eitt­hvert undar­legt upp­lausnar­á­stand ríkja í rekstri Reykja­víkur­borgar. Leiðarinn er nafn­laus að venju en ætla má að Davíð Odds­son rit­stjóri haldi þar á penna.

„Ekki eru margir mánuðir frá því að allt var sagt í himna­lagi í rekstrinum og að fram­undan væru bjartir tímar. Þetta var fyrir kosningar og nú er komið í ljós að reksturinn er af­leitur og út­litið mjög slæmt,“ skrifar leiðara­höfundur. '

Þá rifjar hann upp að fyrir ör­fáum vikum hafi for­eldrar leik­skóla­barna mætt í ráð­húsið. Þá hafi borist sú skýring að mikill skortur væri á leik­skóla­kennurum og að við því gæti borgin lítið gert.

„Nýjustu tíðindi frá meiri­hlutanum í borginni eru þau að leik­skóla­kennarar séu allt of margir og að ætlunin sé að fækka þeim. Nú eru leik­skólar yfir­mannaðir, fyrir skömmu vantaði sár­lega starfs­fólk á leik­skólana.“

Þá skrifar Davíð að það hafi ekki verið sann­færandi að meiri­hlutinn skuli í óða­goti síðast­liðinn fimmtu­dag hafa lagt fyrir borgar­ráð til­lögu um meira en þriggja milljarða króna lán­töku og hafi neitað að fresta af­greiðslunni til að minni­hlutinn fengi tæki­færi til að kynna sér hana.

„Það rifjar raunar upp fleiri at­vik af sama tagi þar sem meiri­hlutinn í borginni af­greiðir stór mál við­skipta­legs eðlis með leynd og felur upp­lýsingar í lokuðum her­bergjum sem enginn má fara inn í nema bundinn trúnaði þannig að borgar­búar fái sem minnstar upp­lýsingar,“ skrifar Davíð.

„En þegar rekstur borgarinnar er kominn í þær ó­göngur sem raun ber vitni og hringlanda­hátturinn slíkur að upp­lýsinga­gjöfin er endur­skoðuð og snúið al­ger­lega á haus á fá­einum vikum, þá er meira en tíma­bært að bæta upp­lýsinga­gjöfina þannig að borgar­búar geti kynnt sér allt sem að baki býr og myndað sér skoðun á á­standinu í stað þess að þurfa að­eins að treysta á spuna­meistara meiri­hlutans og þær „upp­lýsingar“ sem þeir kjósa að veita hverju sinni.“