„Þegar hvolpar eru sex mánaða kemur að slátrun. Þeim er troðið inn í lokaðan kassa og útblástur bensíndráttarvélar tengdur við þar til allir hvolparnir eru kafnaðir; dauðir úr gaseitrun!“
Þetta segir Ole Anton Bieltvedt, stofnandi og formaður Jarðarvina, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Ole Anton er umhugað um velferð dýra en í grein sinni í dag beinir hann sjónum sínum að loðdýraræktinni, búgrein sem hann segir að sé ein sú allra verst með tilliti til kvalræðis dýranna.
Hann segir að minkurinn sé lífvera sem við náttúrulegar aðstæður þarf lífssvæði upp á 10-20 ferkílómetra.
„Í loðdýraræktinni er þessum lífverum troðið inn í vírnetsbúr, 30 x 60 eða 70 cm, þar sem þær eru látnar dúsa og þjást ævilangt. Búklengd með skotti dýranna slagar upp í lengd búranna. Fætur hvíla nánast stöðugt á beittum járnvírum; 2,4 mm skulu þeir vera, en þykkari ekki, svo úrgangur úr dýrunum falli greiðlega í gegn, en hann hrúgast svo iðulega upp undir búrunum og leggur þá af honum hinn versta ódaun og stækju, líka auðvitað þefnæmum dýrunum til mikils ama.“
Ole Anton segir að hvolpunum sé slátrað sex mánaða gömlum og bendir hann á að minkar kunni að kafa og geti vel haldið niðri í sér andanum. „Má ætla að þeir berjist um, reyni að halda andanum niðri og halda frá sér eiturloftinu jafn lengi og lungu leyfa. Hér kann því að eiga sér stað heiftarlegt dauðastríð mínútum saman. Fyrir mér er óskiljanlegt að góðir og gegnir bændur skuli hafa lagt þessa hræðilegu búgrein fyrir sig.“
Hann segir að markaður með loðskinn fari versnandi og augu fatahönnuða, framleiðenda og neytenda opnast. Tekur hann sem dæmi framleiðendur á borð við Armani, Calvin Klein, Gucci, Hugo Boss, Michael Kors, Ralph Lauren, Tom Ford, Tommy Hilfiger og Versace sem hafa sett bann á útilokað náttúrulega loðfeldi í hönnun sinni og framleiðslu.
Hann segir að hér á Íslandi hafi lífinu aftur á móti verið haldið í búgreininni ár eftir ár með fjármunum úr sjóðum almennings. „Ef ég man rétt lagði ríkið þessum bændum, sem þá munu hafa verið 13, minnst 100 milljónir króna til í fyrra, en krafa þeirra var litlar 300 milljónir. Nú fá þeir 10 loðdýrabændur sem eftir eru 160 milljónir króna úr sjóðum landsmanna til að dekka taprekstur sinn og halda áfram sinni miskunnarlausu kvalarækt; fyrir tilstilli ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.“