Segir Dag hafa sýnt einstaka snilld við að halda völdum í borginni

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, segir að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafi sýnt af sér meiri snilli við að halda völdum en nokkur annar íslenskur stjórnmálamaður sennilega fyrr og síðar.

Jón gerir stöðuna í borgarpólitíkinni að umtalsefni á bloggsíðu sinni.

„Völd hans í Borginni byggjast m.a.að hilla til sín villuráfandi Framsóknarmann, taka skemmtikraftinn sem fékk á sínum tíma fylgi í borgarstjórnarkosningum, í fangið og gera hann að borgarstjóra, þó að Dagur stýrði öllu og réði öllu. Nema e.t.v. litnum á kjól skemmtikraftsins í gleðigöngum þess tíma,“ segir Jón sem er þó alls enginn aðdáandi Dags eins og glögglega má lesa í pistli hans.

„Þrátt fyrir stöðugt minnkandi fylgi við Dag í kosningum, þar sem flokkur hans hefur beðið hvert afhroðið á fætur öðru, þá hefur Degi alltaf tekist að koma skríðandi úr brunarústum Samfylkingar og fá til liðs við sig nýja flokka til að halda völdum,“ segir Jón á bloggsíðu sinni og bætir við:

„Slíkur línudans og pólitísk ástaratlot sem borgarstjóri hefur sýnt þeim sem hann þarf að eiga vingott við til að halda völdum hefur að sjálfsögðu kostað sitt en þann kostnað greiða borgarbúar en ekki Dagur sbr. aukin launakostnað borgarstjórnar síðast til að ná Vinstri grænum um borð.“

Jón segir að snilld Dags við að halda völdum hafi ekki skilað sér í stjórnun hans á borginni.

„Fjárhagsleg staða Borgarinnar er hræðileg, viðhald gatna er fyrir neðan allar hellur, hreinsun gatna og gangstíga er óviðunandi. Reykjavík Dags B. Eggertssonar er borg þar sem svifryksmengun er iðulega yfir hættumörkum og veldur dauðsföllum í borg sem telur rétt rúm 100 þúsund íbúa.

Vegna pólitískrar bábilju og tískustrauma reynt að ráða því með hvaða hætti fólk fer á milli staða. Stefna Dagsmeirihlutans í samgöngumálum og fleiri málum byggir á alræðishugmyndum og fyrirlitningu á venjulegu vinnandi fólki og getu þess til að taka eigin ákvarðanir.“

Hann spyr hvort einhver nema innvígður og innmúraður Pírati, Samfylkingarmaður eða stuðningsmaður VG eða Viðreisnar greitt þeim flokkum atkvæði sem stóðu að „braggaruglinu“ í Nauthólsvík.

„Þar kom í ljós algjör óstjórn, spilling og ill meðferð á almannafé. Það er þó bara toppurinn á stóra borgarísjaka spillingarinnar,“ segir Jón sem endar grein sína á þeim orðum að atkvæði greitt Samfylkingu, VG, Pírötum eða Viðreisn í kosningunum sé atkvæði greitt með áframhaldandi óstjórn.

„Dönsku stráin við braggann í Nauthólsvíkinni þó ekki væru annað ættu að vera nóg til að kjósendur höfnuðu algerlega Samfylkingu, VG,Pírötum og að ógleymdri nýjustu hækjunni Viðreisn,“ segir Jón.