Segir brot Lilju sláandi: „Hvaða einka­hags­muna er verið að gæta?“

Hanna Katrín Frið­riks­son segir að niður­staða kæru­nefndar jafn­réttis­mála vegna skipunar Lilju Al­freðs­dóttur, mennta- og menningar­mála­ráð­herra, á Páli Magnús­syni í em­bætti ráðu­neytis­stjóra ráðu­neytisins sé sláandi og brotið raunar eitt það versta sem hefur sést.

Þetta kom fram í máli Hönnu Katrínar á Al­þingi í dag en eins og greint var frá í hádeginu braut Lilja jafn­réttis­lög með skipuninni. Fjórir voru metnir hæfastir af hæfnis­nefnd, Páll, tvær konur og einn karl. Haf­dís Helga Ólafs­dóttir, skrif­stofu­stjóri í for­sætis­ráðu­neytinu og einn af um­sækj­endum um stöðuna, kærði ráðninguna og kom niður­staða í síðustu viku.

Hanna Katrín benti á að hún hefði fyrir skemmstu spurst fyrir um brot opin­berra stofnana á jafn­réttis­lögum frá árinu 2009. Svarið var 25 brot og beindust 18 þeirra gegn konum en 7 gegn körlum. Sagði Hanna Katrín að for­sætis­ráð­herra hefði sagt að þetta væri 25 til­vikum of mikið.

„Rök­stuðningurinn er sláandi,“ sagði Hanna Katrín sem vísaði í niður­stöðu kæru­nefndar þess efnis að rök­stuðning fyrir ráðningunni hafi skort. Þá hafi hæfni kæranda saman­borið við Pál verið van­metin mjög, til dæmis varðandi reynslu af opin­berri stjórn­sýslu, leið­toga­hæfi­leika og hæfni til að tjá sig í riti.

„Þetta voru allt for­taks­laus skil­yrði í aug­lýsingunni,“ sagði hún og bætti við að það væri erfitt að draga aðra á­lyktun en að um á­setnings­brot hefði verið að ræða.

Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra steig í pontu og sagði að Lilja hefði upp­lýst ríkis­stjórnina um úr­skurðinn á fundi ríkis­stjórnarinnar í morgun. Hún sagðist enn vera þeirrar skoðunar að 25 brot væru 25 brotum of mikið. Sagðist Katrín ekki í vafa um að hægt væri að gera betur í þessum mála­flokki.

Hanna Katrín steig aftur í pontu og sagði að Haf­dís Helga hafi í þrí­gang þurft að óska eftir rök­stuðningi – einka­hags­munir annarra hafi verið taldir ríkari en hennar hags­munir. „Þetta er al­gjör­lega galið og maður veltir fyrir sér hvaða einka­hags­muna er verið að gæta með þessari nálgun,“ sagði hún. „Þetta dæmi er eitt af þeim verri sem við höfum séð,“ sagði hún og bætti við að svona gangi þetta ekki lengur.

Fréttablaðið/Ernir