„Það virðist ljóst, að Þórólfur, Svandís og Katrín verða nú að setja sig í aðrar, réttmætari og virkari stellingar með sína Covid-stjórnun. Án tafar.“
Þetta segir Ole Anton Bieltvedt, kaupsýslumaður og stjórnmálarýnir, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Þar skrifar hann um bólusetningar landsmanna en eins og kunnugt er hefur kórónuveiran haldið áfram að leika okkur grátt þó að stærsti hluti þjóðarinnar hafi þegar fengið bóluefni.
Ole Anton rifjar upp að ríkisstjórn Austurríkis hefði nýlega sett útgöngubann á alla óbólusetta í tíu daga. Í kjölfarið var ákveðið að innleiða skyldubólusetningu við Covid frá febrúar 2022.
„Skyldi þetta vera mannfyrirlitning eða valdníðsla austurrískra stjórnvalda? Nei. Þessi ákvörðun byggir á staðreyndum og skynsamlegu mati, þar sem almannaheill –velferð og öryggi mikils meirihluta þjóðarinnar – er lögð til grundvallar.“
Hann rifjar svo upp ummæli Rúnars Pálssonar, yfirlæknis á Landspítala, sem sagði í fréttum RÚV á dögunum að óbólusettir sjúklingar væru nú orðnir fleiri en hinir bólusettu þó að hlutfall óbólusettra sé aðeins tíu prósent af þjóðinni.
„Það þýðir, að innlagnir óbólusettra eru hlutfallslega sex til sjö sinnum fleiri en innlagnir bólusettra!Ekki bara hér, heldur alls staðar um Evrópu eru það einmitt óbólusettir, sem virðast næra veiruna, halda henni gangandi, og eru sums staðar allt að 90% innlagðra á gjörgæzludeildum einmitt óbólusettir.“
Ole Anton bendir á að bólusetningar séu af þessum sökum ekki einkamál manna. Yfirfylling spítala og gjörgæsludeilda verði því að skrifast á reikning óbólusettra.
„Ef þeir hefðu látið bólusetja sig, virðist augljóst, að ekki hefði komið til yfirfyllingar og þeirra margvíslegu vandræða, sem af þeim stafa, ekki bara fyrir frelsi almennings, mannlífið, heldur líka fyrir atvinnulífið, sérstaklega veitinga- og þjónustugeirann, en á honum byggja þúsundir fjölskyldna afkomu sína.“
Ole Anton kallar eftir því að stjórnvöld hér grípi til ráðstafana. Það blasi við að ef þessar umfram innlagnir óbólusettra hefðu ekki komið til hefði ekki þurft að innleiða nýjar samkomutakmarkanir fyrir alla.
Pistill Ole Antons í heild sinni.