Segir aug­ljóst að Dagur hafi ekki sagt satt um fjár­málin

Frið­jón Frið­jóns­son borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins segir aug­ljóst í vor að þá­verandi meiri­hluti og Dagur B. Eggerts­son borgar­stjóri hafi ekki sagt fylli­lega satt um fjár­mál Reykja­víkur­borgar.

Þetta kemur fram í Dag­málum, hlað­varpi Moggans og í Mogganum sjálfum í dag. Stefán Páls­son vara­borgar­full­trúi Vinstri grænna er þar einnig til við­tals og er sam­mála Frið­jóni.

Stefán segir við­brögðin í Ráð­húsinu ein­kennast af fumi, fáti og felmtran.

„Það var ekki nema tólf dögum fyrir til­kynninguna frá skólaog fríðs­tunda­sviði [Reykja­víkur] um að þau hefðu lagst betur yfir skjalið og komið í ljós að það væri allt fullt af auka­starfs­mönnum. Að­eins tólf dögum fyrr hafði hvekktum for­eldrum, sem ekki komust með börn sín inn á leik­skóla, verið sagt að þetta snerist um það að ekki gengi að manna stöður, að þetta væri mönnunar­vandi, sem ein­hvern veginn hafði breyst á þessum undr­askjóta tíma.“