Segir AstraZene­ca hafa skapað nýjan sjúk­dóm

Jens Lund­gren, prófessor í bólu­efna­fræðum og leiðandi vísinda­maður Dan­merkur, segir að bólu­efni AstraZene­ca valdi nýjum sjúk­dómi sem ber nafnið VITT. Sá sjúk­dómur hafi valdið mörgum af þeim ban­vænu blóð­töppum sem fengið hafa Dani til að hætta al­farið notkun bólu­efnisins.

Þetta hefur Frétta­blaðið eftir Lund­gren sem ræddi málin í sam­tali við TV2 sjón­varps­stöðina. Eins og fram hefur komið á­kváðu Danir í gær að hætta al­farið notkun bólu­efnis AstraZene­ca.

„Nýr sjúk­­dómur hefur verið stað­­festur og skil­­grein­dur og nú vitum við að það er bólu­efnið sem veldur þessum sjúk­­dómi,“ segir Lund­gren við TV2. Því hafi það verið rétt á­kvörðun hjá Dönum að hætta notkun efnisins.

Nýi sjúk­­dómurinn kallast VITT og heil­brigðis­yfir­­völd í Dan­­mörku telja einn af hverjum fjör­tíu þúsundum í hættu. Sagt er að þýskt rann­­sóknar­teymi hafi þann 9. apríl síðast­liðinn sannað sam­hengi milli AstraZene­­ca bólu­efnisins og VITT og greint frá því í hinu viður­­kennda riti New Eng­land Journal of Medicine.

Í frétt TV2 kemur fram að sjúk­dómurinn kvikni þegar sá bólu­setti myndi ekki að­eins mót­efni gegn CO­VID-19 heldur líka gegn blóð­flögum sem kallast trom­bo­cytter. Blóð­flögurnar stýri storknunar­eigin­leikum blóðsins.

„Þetta er ein­fald­­lega komin ný sjúk­­dóms­­greining, nýr sjúk­­dómur, nýtt flækju­­stig í lækna­bækurnar,“ sagði Søren Brostrøm, for­­stjóri heil­brigðis­­stofnunarinnar í Dan­­mörku á blaða­manna­fundi í gær.