Segir and­stæðinga þrí­eykisins hug­rakka og skemmti­lega ó­skamm­feilna

Gísli Marteinn Baldurs­son tjáir sig um vel­gengni ís­lenskra sótt­varnar­yfir­valda og sendir gagn­rýn­endum pillu í Twitter færslu sem vakið hefur mikla at­hygli í dag.

„Mér finnst hug­rakkt og skemmti­lega ó­skamm­feilið af þeim sem hafa mót­mælt hverri einustu á­kvörðun þrí­eykisins og
@svasva [Svan­dísar Svavars­dóttur] í sótt­varnar­að­gerðum - að vera enn staffírug að segja: Hey, á­standið er betra hér en all­staðar í heiminum þannig að NÚNA skuluð þið hlusta á okkur!“

Ýmsir hafa í­trekað gagn­rýnt sótt­varnar­yfir­völd, meðal annars nú ný­verið vegna grímu­skyldunnar. Líkt og Hring­braut greindi frá var Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wiki­leaks, einn þeirra. Benti hann á að engin grímu­skylda hefði verið við lýði hér­lendis þegar fyrsta bylgjan var kveðin niður. Þá hafa Brynjar Níels­son og Sig­ríður Á. Ander­sen, þing­menn Sjálf­stæðis­flokksins, einnig gagn­rýnt sótt­varnar­að­gerðir og sagt þær í­þyngjandi.

Svan­dís Svavars­dóttir, heil­brigðis­ráð­herra, svarar færslu Gísla. Í um­mælum sínum skrifar ráð­herrann ein­fald­lega: „:D“

Sjá einnig: Kristinn gagn­rýnir grímu­skyldu að nýju: „Ís­land ER sótt­kví“