Júlíus Viggó Ólafsson stjórnarmeðlimur í Sambandi ungra sjálfstæðismanna segir alla sjá að ákveðinn klíkuskapur hafi hreiðrað um sig í Sjálfstæðisflokknum undir stjórn Bjarna Benediktssonar. Hann nái ekki til þverskurðs samfélagsins og segir Júlíus að fylgið hafi verið á niðurleið frá fyrsta degi Bjarna sem formaður.
Júlíus segir stuðningsfólk Bjarna stunda innantóman hræðsluáróður. Hann vitnar til orða Katrínar Jakobsdóttur um stjórnarsamstarfið þar sem hún segir það ekki í hættu, heldur sé það Sjálfstæðismanna að útkljá.
Enginn einn stærri en flokkurinn
„Þeir sem fleyta fram þessum áróðri ættu að spyrja sig hvort að ríkisstjórnin myndi springa ef Framsókn myndi velja sér nýjan formann. Við vitum að svarið við því er nei,“ skrifar Júlíus í aðsendri grein á Vísi.
„Því miður hefur orðið vart við það að Bjarni sjálfur og hans nánasta stuðningsfólk dreifi nú þessum hræðsluáróðri til sjálfstæðisfólks. Kannski þarf að minna fólk á það að enginn einn maður er stærri en flokkurinn.“
Segir fylgistapið staðreynd
Júlíus segir að staðan sé sú að eini hægri flokkur landsins mælist nú með 19 til 22 prósent fylgi í skoðanakönnunum.
„Að horfast ekki í augu við þá staðreynd er að stinga hausnum í sandinn,“ skrifar Júlíus. Hann tekur fram að Bjarni hafi þjónað landi og þjóð vel sem fjármálaráðherra en kosningin snúist um formann sem geti leitt flokkinn áfram.
„73% svarenda í könnun Reykjavík Síðdegis í síðustu viku sögðust líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn með Guðlaug Þór sem formann. Þrátt fyrir það að könnunin sé ekki hávísindaleg, þá gefur hún okkur ágætis mynd af því hvor frambjóðandinn er líklegri til að afla flokknum fylgis. Alls svöruðu 5,700 könnuninni og þar af vildu rúmlega 4,100 sjá Guðlaug í brúnni.“
Vill breikka fylgið meðal tekjulágra
Júlíus segir að samkvæmt mælingum hafi flokkurinn misst fylgi sitt meðal lágtekjufólks sem sé nú undir 15 prósentum og meðaltekjufólks hrunið í um það bil 20 prósent.
„Á meðan fylgið helst yfir 40% meðal tekjuhárra. Þróunin hefur átt sér stað með Bjarna Benediktsson við stýrið. Flokkurinn þarf að bæta ásýnd sína og það tekur tíma. Venjulegt fólk, sama inn í hvernig fjölskylduaðstæður það fæðist, á að geta fundið sig í sjálfstæðisstefnunni.Sjálfstæðisstefnan stuðlar að samfélagi byggt á frelsi, tækifærum og ábyrgð. Samfélagi þar sem allir geta náð langt.“
Bjarni ekki sinnt Suðurlandi
Sjálfur segist Júlíus vera Suðurnesjamaður og eiga sér fólk að víðsvegar um Suðurkjördæmi.
„Ef þú ert landsfundarfulltrúi frá Suðurkjördæmi þá væri ekki verra að spyrja sig: „Hvernig hefur Bjarni sinnt kjördæminu sem formaður?“. Ef þú hugsar málið, tel ég líklegt að hið augljósa svar sé: Afar illa.“
Fylgið niður frá upphafi
Júlíus tekur fram að hann ætli sér ekki að rífa Bjarna niður. Hann hafi stutt hann lengi og segir Júlíus það ekki auðvelda ákvörðun að styðja ekki formann flokksins lengur.
„Hins vegar væri glapræði að horfast ekki í augu við staðreyndir. Fylgi flokksins hefur verið á niðurleið frá fyrsta degi af formennsku hans, fólk sækist í minna mæli eftir því að taka þátt í grasrótinni og það sjá allir að ákveðinn klíkuskapur er farin að hreiðra um sig í flokknum. Þegar fyrirtæki missir markaðshlutdeild sína og það hefur bara gerst undir einum framkvæmdastjóra, þá er kannski kominn tími til að skipta.“