Segir afgerandi vísbendingar um lögbrot vegna Íslandsbankasölunnar

Kristrún Frostadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, segir afgerandi vísbendingar um lögbrot vegna Íslandsbankasölurnar felast í svörum Bankasýslunnar og fjármálaráðherra á fundum í síðustu viku.

Þetta kemur fram í aðsendum pistli á Vísi.Þar rekur Kristrún þrjú brot á jafnræði, að almenningi hafi verið haldið frá útboðinu, að ekki hafi allir „hæfir fjárfestar“ getað tekið þátt og að tveimur „hæfum fjárfestum“ hafi verið hafnað.

Kristrún segir enga tilviljun að listi yfir þátttakendur í útboðinu og fjárhæð úthlutana hafi vakið mikla athygli í samfélaginu. Hún segir kaupendahópinn ekki endurspegla það markmið sem lokunin á útboðinu átti að ná fram, að laða að stóra langtímafjárfesta.

„Tilraunir Bankasýslunnar og fjármálaráðherra í vikunni til að endurskrifa söguna með því að breyta markmiði söluferlisins eftirá eru í besta falli hjákátlegar – í versta falli felst í þeim ásetningur til að afvegaleiða athugun Alþingis á því hvernig staðið var að ráðstöfun ríflega 50 milljarða króna eignarhlutar í kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki.“

Þá segir Kristrún ljóst að ekki gátu allir hæfir fjárfestar tekið þátt. „Forsvarsmenn Bankasýslunnar staðfestu á opna fundinum með fjárlaganefnd að aðeins viðskiptavinir þeirra söluráðgjafa sem sáu um útboðið gátu tekið þátt. Þessir fimm söluráðgjafar voru valdir án útboðs.“

Kristrún segir aðgang að útboðinu hafa ráðist af því hvort viðkomandi „hæfur fjárfestir“ væri í viðskiptum við einn eða fleiri þeirra fimm söluráðgjafa sem falið var án útboðs að annast framkvæmd sölunnar. „Þannig var ekki tryggt að allir sem uppfylltu skilgreiningu útboðsins um hæfi sætu við sama borð.“