„Að mínu mati er verið að eyðileggja borgina. Fegurðin, sérstaðan og þokkinn sem hún bjó yfir hefur nú lotið í lægra haldi fyrir byggingarframkvæmdum,“ segir Jordi Pujolá, rithöfundur frá Spáni sem hefur verið búsettur í Reykjavík frá árinu 2013, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Jordi, sem er hagfræðingur að mennt og með yfir 15 ára reynslu í fasteignaviðskiptum í Barcelona, skrifar um stöðu húsnæðismála í Reykjavík og bendir á að borgin, rétt eins og margar stórborgir í Evrópu, vaxi nú á ógnarhraða. Samhliða því hafi húsnæðisverð hækkað undanfarin ár.
„En munurinn á Reykjavík og öðrum stórborgum, eins og til dæmis London, París eða Barselóna, er þó stórvægilegur: Hér er nóg af landi. Af hverju dreifum við ekki byggðinni? Á höfuðborgarsvæðinu er mikið af byggjanlegu landi til að nýta undir ný íbúðahverfi,“ segir Jordi sem er þeirrar skoðunar að verið sé að eyðileggja borgina.
„Í staðinn sjáum við minni lífsgæði, færri bílastæði, íbúðarhúsnæði er orðið minna og fermetrinn hækkar samt í verði, útsýni er varla á færi annarra en þeirra efnamestu eða hóteleigenda. Með öðrum orðum: þétting byggðar er ekki lausnin. Verð mun bara rjúka upp og það á kostnað lífsgæða,“ segir Jordi í grein sinni og bætir við að eingöngu spákaupmennskan græði á því þar sem ekkert pláss er eftir.
„Að hvetja til aukinnar notkunar almenningssamgangna er af hinu góða, en þó ekki raunhæft að ætlast til þess af meirihluta höfuðborgarbúa. Fjölskyldubíllinn verður alltaf mikilvægur Reykvíkingum veðurfarsins vegna. Það væri líklega hægt að líta öðruvísi á málið ef hér væri lestarkerfi eða neðanjarðarsamgöngur. Björgum borginni. Reykjavík er okkar!“