Segir að hneykslið geti skaðað Sjálfstæðisflokkinn

„Það er hugsanlegt,“ segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur þegar hann er spurður að því hvort hneykslismálið sem hefur leitt til brottrekstrar og í það minnsta tímabundinna starfsleyfa fimm karla vegna ásakana um kynferðisbrot gagnvart Vítalíu Lazareva kunni að hafa skaðleg áhrif á Sjálfstæðisflokkinn.

Fréttablaðið fjallar um málið í dag og bendir á að flestir karlanna hafi haft einhverjar tengingar við Sjálfstæðisflokkinn.

Eins og kunnugt er vék Ísey Ara Edwald frá störfum um helgina og þar áður höfðu fjórir karlar stigið til hliðar eða verið sendir í leyfi. Þá hefur umdeilt „læk“ Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur við færslu Loga Bergmanns orðið að fréttaefni.

Spurður um pólitísk áhrif málsins rifjar Ólafur Þ. Harðarson upp Klaustursmálið. Fylgi Miðflokksins hafi fyrst eftir að það kom upp minnkað um helming, braggast á ný en hrunið í kosningunum 2021.

„Kannski átti Klaustursmálið þátt í fylgishruni Miðflokksins, þó margar aðrar skýringar séu hugsanlegar,“ segir Ólafur en málin tvö eiga sameiginlegt að niðrandi framkoma gagnvart konum vakti reiði almennings í báðum tilfellum.

Frétt Fréttablaðsins.