Herferð gegn stöðluðum karlmennskuhugmyndum er í gangi. Fyrst hófst sögusöfnun árið 2018 á Twitter þar sem karlar sögðu frá upplifun sinni af því að vera mældir á stiku gamalla karlmennskuhugmynda – það var í anda #metoo en nú síðar er myllumerkið #karlmennskan á fleygiferð um samfélagsmiðla.
Finna má slóðir á miðlana á Facebook síðunni Karlmennskan
Þorsteinn V. Einarsson mætir til Lindu Blöndal í þáttinn 21 á Hringbraut en hann stýrir þessu verkefni þar sem barist er við viðgengnar hugmyndir um t.d. að karlmennska felist í að harka af sér og síður sýna tilfinningar.
Þorsteinn sem er kennaramenntaður lauk nýverið Meistaragráðu í kynjafræðum og sagði starf sitt áður í félagsmiðstöðu hafa breytt viðhorfum sínum til kynjahlutverkanna til frambúðar og segist nú vera „karlremba í bata“. Hann bendir á að karlmennskuhugmyndir sem eiga við tíðaranda fyrri tíma sé skaðleg ungum körlum líka sem geta ekki fundið tilfinningum sínum farveg svo stundum fari illa af þeim sökum, hann tengir slíkt t.d við kynbundið ofbeldi sem karlar beita.