Savannatríóið er líklega þekktasta þjóðlagahljómsveit Íslands fyrr og síðar. Tríóið var stofnað rétt eftir 1960 og skipað þeim Þóri Baldurssyni, Tróels Bentsen og Birni G. Björnssyni sem er gestur í hlaðvarpinu Lífið er lag.
Björn rifjar upp hvernig þetta frábæra „band“ varð til og hvar þeir héldu fyrstu formlegu tónleika sína. Tríóið varð skyndilega mjög vinsælt og voru svo þétt bókaðir að stundum héldu þeir allt að 3 tónleika á dag og léku nánast alla daga vikunnar. Björn og félagar voru m.a. fengnir til að semja og halda skemmtiþætti í Sjónvarpinu þegar það hóf göngu sína haustið 1966 sem frægt er en eftir tríóið liggja fjölmargar hljómplötur með hundruð laga sem þeir fluttu á árum áður. Í samtali við þáttastjórnanda rifjar Björn einnig upp feril sinn sem leikmyndahönnuður en auk þess að starfa hjá Sjónvarpinu hóf Björn störf á Stöð 2 fljótlega eftir stofnun þess fyrirtækis. Björn hefur komið víða við á lífsleiðinni og aðstoðað við fjölmörg verkefni t.a.m. uppsetningu á sýningu um dvöl Jóns Sigurðssonar og frú Ingibjargar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Nýverið kom út bókin „Húsameistari í hálfa öld“ þar sem Björn fjallar um ævi og störf Einars I. Erlendssonar fyrrv. Húsameistara ríkisins. Björn er einnig nátengdur Björgvini Halldórssyni og komið að uppsetningu Jólagesta nánast frá upphafi.
Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is