Sau­tjánda and­látið vegna CO­VID-19 hér á landi

Einn sjúk­lingur lést á síðasta sólar­hring á Land­spítala vegna Co­vid-19. Er þetta sau­tjánda and­látið hér á landi vegna CO­VID-19 og það sjöunda frá því að þriðja bylgja far­aldursins hófst í haust.

Greint er frá and­látinu á vef Land­spítalans en ekki koma fram fram nánari upp­lýsingar, til dæmis um aldur við­komandi. „Að­stand­endum er vottuð sam­úð,“ segir í frétt á vef spítalans.

Sam­kvæmt upp­lýsingum á vef CO­VID.is eru nú 72 á sjúkra­húsi og þrír á gjör­gæslu. Nýjar tölur um fjölda smita í gær koma á vef CO­VID.is klukkan 11.