Sau­tján ný innan­lands­smit: Það mesta á einum degi síðan í apríl

Sau­tján ný CO­VID-19 smit greindust hér á landi síðasta sólar­hring; þrettán á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spítalans og fjögur hjá Ís­lenskri erfða­greiningu. Þetta er mesti fjöldi smita á einum degi síðan þann 9. apríl síðast­liðinn en þá greindust 27 smit hér á landi.

Þetta kemur fram í tölum sem eru að­gengi­legar á CO­VID.is. Um þrjú þúsund sýni voru tekin í gær.

Þá greindust þrjú virk smit við landa­mæra­skimun en beðið er eftir mót­efna­mælingu varðandi fjórða smitið.

Þar kemur fram að 109 ein­staklingar séu nú í ein­angrun og 914 í sótt­kví. Góðu fréttirnar eru þó þær að enginn er á sjúkra­húsi.

Al­manna­varna­deild ríkis­lög­reglu­stjóra og em­bætti land­læknis hafa boðað til upp­lýsinga­fundar fyrir fjöl­miðla klukkan 14:00 í dag. Þar munu Þór­ólfur Guðna­son, sótt­varna­læknir og Víðir Reynis­son, yfir­lög­reglu­þjónn fara yfir stöðu mála, varðandi fram­gang CO­VID-19 far­aldursins hér á landi. Gestur fundarins verður Jóhann Björn Skúla­son, yfir­maður smitrakningar­teymis al­manna­varna.