Kona á þrítugsaldri var flutt á sjúkrahús í gær eftir að ekið var á hana fyrir utan verslun Nettó í Hafnarfirði. RÚV greindi fyrst frá málinu í morgun. Grunur leikur á að ekið hafi verið á konuna vísvitandi.
Þannig er mál með vexti að árekstur varð á milli tveggja bíla skammt frá verslun Nettó á Miðvangi síðdegis í gær. Í frétt RÚV kom fram að ökumennirnir hafi báðir verið konur á þrítugsaldri.
Ósætti braust út í kjölfarið sem varð til þess að önnur kvennanna ók á hina þegar sú síðarnefnda fór út úr bílnum sínum. Hlaut konan áverka í andliti og brotna tönn auk þess að hruflast á líkama.
Í fréttinni er haft eftir Skúla Jónssyni, stöðvarstjóra lögreglunnar í Hafnarfirði, að málið sé litið alvarlegum augum. Hann segir að konan sem ók á hina hafi ekki verið handtekin en tekin hafi verið af henni skýrsla.