Sauð upp úr við Bónus í Spönginni: Ný­orðnir 15 ára þegar þeir réðust á hann

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur sak­fellt tvo pilta fyrir líkams­á­rás á bif­reiða­stæði við verslun Bónus í Spönginni þann 20. desember 2018. Piltarnir voru ný­lega 15 ára gamlir þegar á­rásin var framin.

Í á­kæru kemur fram að piltarnir hafi veist að öðrum ungum ein­stak­lingi og slegið hann með krepptum hnefa svo hann féll í jörðina. Í kjöl­farið eru þeir sagðir hafa sparkað í­trekað í líkama hans og höfuð en af­leiðingar á­rásarinnar voru þær að fórnar­lambið hlaut yfir­borðs­á­verka á höfði, nefi og oln­boga, mar á brjóst­kassa og yfir­borðs­sár á höfði og and­liti. Piltarnir játuðu báðir sök fyrir dómi.

Í niður­stöðu dómsins kemur fram að piltarnir hafi iðrast gjörða sinna og var litið til þess við á­kvörðun refsingar. „Þá voru þeir ný­lega orðnir fimm­tán ára gamlir þegar brotið var drýgt og má á­líta vegna æsku þeirra að full refsing sé ó­nauð­syn­leg eða skað­leg,“ segir enn fremur.

Til refsi­þyngingar var litið til þess að brotið var framið í sam­einingu, af nokkrum gróf­leika og beindist að mikil­vægum verndar­hags­munum með tjóni og hættu á tjóni fyrir brota­þola sem var ungur að árum. Þá var litið til þess að ó­hæfi­legur dráttur varð á með­ferð málsins sem var piltunum ó­við­komandi.

Annar piltanna var dæmdur í 45 daga fangelsi, en dómurinn er skil­orðs­bundinn til tveggja ára. Sá var sak­felldur í að­skildu máli á síðasta ári og var litið til þess. Á­kvörðun um refsingu yfir hinum var frestað skil­orðs­bundið í tvö ár frá upp­sögu dómsins. Piltunum var svo báðum gert að greiða laun verjanda sinna, 250 þúsund krónur hvor.