Upp úr sauð á fundi hjá knattspyrnudeild Þórs á Akureyri þegar Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, kom á framboðsfund. Samkvæmt Mannlíf, sem byggir sína frásögn af vitnum, byrjaði Jóna Emilía Arnórsdóttir, móðir Arons Einars Gunnarssonar, að spyrja Vöndu út í mál hans.
Aron Einar er einn þeirra tekinn út úr landsliði Íslands í kjölfar ásakana um kynferðisbrot.
Móðir hans spurði Vöndu hvort hún hafi hringt í hann. Vanda mun ekki hafa vilja svara því. Þá hafi hún ekki viljað ræða hvort hann kæmi aftur í landsliðið ef mál hans verður fellt niður.
Jóna Emilía mun þá hafa tekið yfirhöfn sína og yfirgefið fundinn.