Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 60 daga skilorðsbundið fyrir líkamsárás. Árásin endaði á að kosta hann skildinginn því hann var dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 400 þúsund krónur í bætur og tæpar 370 þúsund krónur í málsvarnarlaun, samtals 770 þúsund krónur.
Samkvæmt ákæru átti atvikið sér stað föstudaginn 25. ágúst 2017 á Kalda bar við Laugaveg í Reykjavík. Árásarmaðurinn veittist ítrekað með ofbeldi að öðrum manni, sló hann tveimur hnefahöggum og skallaði hann í andlitið með þeim afleiðingum að hann kastaðist á útidyrahurð staðarins.
Afleiðingar árásarinnar urðu þær að fórnarlambið kastaði ítrekað upp í kjölfar heilahristings, fékk mar í andliti, brot á tönn og tognun á hálsi.
Fórnarlambið í málinu fór fram á að maðurinn greiddi þrjár milljónir króna í bætur en dómari taldi 400 þúsund krónur hæfilegar. Árásarmaðurinn játaði sök í málinu, en hann hefur ekki áður brotið af sér. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.