Talsverður hiti var á fundi borgarráðs í gær eftir að Helga Björg Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri borgarstjóra og borgarritara, tók sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, gerði alvarlegar athugasemdir við það.
Grunnt hefur verið á því góða milli Vigdísar og Helgu og hefur sú síðarnefnda sakað Vigdísi um einelti. Á fundinum í gær sauð upp úr milli Vigdísar og fulltrúa meirihlutans. Gengu ásakanir á víxl og virtist Vigdís fá að lokum nóg þegar hún sagðist íhuga að leita réttar síns vegna ummæla sem finna mátti í bókunum meirihlutans.
Sagði áreitið halda áfram
Eftir að Helga tók sæti lagði Vigdís fram eftirfarandi bókun:
„Það er valdníðsla af formanni borgarráðs, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, að hleypa skrifstofustjóra borgarstjóra, Dags B. Eggertssonar, Helgu Björg Ragnarsdóttur inn á fundi þar sem ég, réttkjörin borgarfulltrúi Miðflokksins, hef skyldusetu samkvæmt lögum,“ sagði Vigdís í bókun sinni.
Hún sagði svo að í þrígang hefði friðhelgi hennar á eigin heimili verið brotin að kvöldi til þegar ábyrgðarpóstur barst henni með grófum ásökunum um einelti af hálfu Vigdísar gegn Helgu.
„Áreitið gegn mér heldur áfram með samþykki formanns borgarráðs, borgarstjóra og meirihlutans með því að hleypa þessari konu á fundi þar sem ég er. Samkvæmt ásökunum sem bornar hafa verið á mig á þessi kona að forðast mig en ekki sækja í að vera þar sem ég er. Ég mótmæli setu hennar í hvert einasta sinn sem hún mætir á fundi til að verjast áreiti hennar en formaður borgarráðs hefur það að engu. Mitt eina úrræði er því að snúa baki við skrifstofustjóra Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, til að forðast áframhaldandi áreiti hennar í minn garð.“
Sögðu Vigdísi þekkta fyrir árásir á starfsfólk
Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna lögðu þá fram gagnbókun þar sem bent var á að skrifstofustjórum með mál fyrir borgarráði væri skylt að fylgja málum sínum eftir. Það hafi ekkert með borgarfulltrúa Miðflokksins að gera.
„Áfram heldur borgarfulltrúinn árásum sínum á starfsfólk sem hann er orðinn þekktur fyrir bæði hjá ríki og borg. Framkoma borgarfulltrúa er honum til minnkunar og betur færi á því að borgarfulltrúinn sinnti skyldu sinni og stæði vörð um hag Reykjavíkurborgar frekar en að vinna að því að grafa undan innviðum borgarinnar,“ sagði meirihlutinn.
Taka þátt í eineltinu
Vigdís var ekki sátt við þessa bókun og lagði fram gagnbókun þar sem hún sagði að fram kæmu aðdróttanir og alhæfingar sem væru úr lausu lofti gripnar. Máli sínu til stuðnings hafi þau vísað til vinnu hennar á Alþingi án þess að hafa nokkrar staðfestingar máli sínu til stuðnings.
„Með þessum málflutningi kvittar meirihlutinn upp á að taka þátt í eineltismenningu ráðhússins. Formaður borgarráðs sem stýrir fundinum gerir ekki athugasemdir við þessar árásir sem kjörinn fulltrúi situr undir, en á samt að vinna jafnt fyrir alla borgarfulltrúa og gæta jafnræðis og sanngirni,“ sagði Vigdís.
„Fólki er nóg boðið“
Í gagnbókun sögðu borgarráðsfulltrúar meirihlutans að þegar Vigdís gegndi hlutverki formanns fjárlaganefndar hefðu borist ýmsar kvartanir um hegðun hennar gagnvart starfsfólki og embættismönnum.
„Formlegar kvartanir bárust m.a. fjármálaráðuneytinu og forseta Alþingis um staðhæfingar og orð sem hún hefur látið falla í viðtölum. Fólk hefur einnig kvartað yfir ókurteisi hennar á fundum sem hún stýrir, m.a. Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans og fleiri. Það þarf ekki að leita langt en um hegðun Vigdísar Hauksdóttur er fjallað í fjölmiðlum því fólki er nóg boðið vegna framkomu hennar,“ sagði í bókuninni en þar var einnig bent á frétt RÚV frá árinu 2016 þar sem fjallað var um ummæli hennar um embættismenn hjá Ríkisendurskoðun og fjármálaráðuneytinu.
„Óbærilegur eineltiskúltúr“
Vigdís virtist fá alveg nóg eftir þessa bókun meirihlutans og hótaði raunar að leita réttar síns.
„Í samráði við lögmann verður vart hjá því komist lengur að ég leiti réttar míns til að hreinsa æru mína af þeim ávirðingum sem á mig eru bornar af borgarfulltrúum meirihlutans í borgarstjórn. Sá eineltiskúltúr sem ríkir í ráðhúsinu og ríkt hefur lengi er óbærilegur og er farinn að taka á sig alvarlegar myndir. Hér hafa fulltrúar meirihlutans á þessum fundi gengið lengra en nokkru sinni fyrr og rótað upp rógburði fjölmiðla í fyrri störfum mínum. Fulltrúar meirihlutans bera ábyrgð á orðum sínum og ummæli og vinnubrögð þeirra dæma sig sjálf. Þessi hegðun meirihlutans er dæmigerð fyrir þá meðvirkni sem ríkir um eineltiskúltúr ráðhússins sem ríkt hefur þar um árabil.“