Sátu fyrir syni Álfheiðar og réðust á hann – Upptökunni var svo dreift í skólanum

Álfheiður Eymarsdóttur, oddviti Pírata, í Suðurkjördæmi og íbúi á Selfossi, segir að sonur hennar hafi orðið fyrir fólskulegu ofbeldi af hálfu jafnaldra sinna árið 2019.

Lögreglan á Suðurlandi greindi frá því í gær að upp hefðu komið atvik þar sem börn á Selfossi hefðu beitt hvort annað ofbeldi, tekið það upp á myndband og dreift á samfélagsmiðlum. Þetta virðist ekki vera neitt einsdæmi eins og Álfheiður lýsir á fréttavef DV sem fjallar um málið.

Sonur Álfheiðar var 14 ára árið 2019 þegar hann varð fyrir ofbeldi.

„Drengurinn minn lenti í þessu. Hann og  bekkjarfélagi mæltu sér mót. Þegar minn drengur mætti á staðinn var þetta í raun fyrirsát,“ lýsir Álfheiður en bekkjarfélagi hans réðist á son hennar, sparkaði hann niður og sparkaði svo í maga hans og rif meðan hann lá liggjandi.

„Annar drengur var viðstaddur til að taka allt upp á síma sem var svo dreift um allan skólann,“ segir hún og bætir við að sonur hennar fari ekki út nema á hraðskreiðu ökutæki eftir þetta. Svo virðist sem piltunum hafi sinnast í tölvuleik og segir Álfheiður í frétt DV að sonur hennar geti verið orðhvatur  og orðljótur í hita leiksins. Hann hafi líklega sagt eitthvað sem varð til þess að viðkomandi veittist að honum með fyrrgreindum hætti.

Í fréttinni kemur fram að sonur Álfheiðar hafi ekki sagt henni frá atvikinu til að byrja með. Voru það áhyggjufullar stúlkur sem höfðu samband við skólahjúkrunarfræðing eftir að myndbandið fór í dreifingu og hafði hjúkrunarfræðingurinn svo samband við Álfheiði.

„Það var fyrst þá sem ég sá áverkana á syni mínum og þeir voru svo ljótir að ég óttaðist að hann hefði fengið innvortismeiðsl og fór með hann á slysamóttöku,” segir hún.

Nánar er fjallað um málið í frétt DV en þar lýsir Álfheiður andlegum afleiðingum árásarinnar á son hennar.