Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir er miður sín þessa dagana eftir að hafa misst hundinn sinn Mola í skelfilegu slysi á dögunum.
Sara greinir frá þessu í tilfinningaþrunginni færslu á Instagram-síðu sinni þar sem hún lýsir þeim mikla vinskap sem var á milli þeirra. Moli var fæddur 25. mars 2020 og dó hann þann 24. júní síðastliðinn eftir að hafa orðið fyrir bíl.
„Ég er enn að átta mig á því að hann sé farinn. Þetta var að kvöldi til og ég ætlaði að fara í þriggja tíma hjólreiðatúr við sjávarsíðuna í kringum alla fuglana – uppáhald hans. Líkurnar á því að á þessum tíma myndu þrír flutningabílar aka um svæðið voru 0,00008% svo Moli fékk að hlaupa frjáls. Þegar hann sá eitthvað nálgast hratt þá var það í eðli hans að taka sprettinn á eftir því og reyna að taka forystuna. Hann gat hlaupið svo hratt að það var ekkert sem gat náð honum eða stöðvað hann. Hann náði bílnum en bílstjórinn sá hann ekki fyrr en of seint,“ segir Sara í færslunni og Moli hafi dáið við að gera það sem honum þótti skemmtilegast.
„Þessi færsla er tileinkuð honum og hvernig hann breytti lífi mínu og því hvernig ég horfi á hlutina. Hann var mér allt,“ segir Sara meðal annars í færslu sinni.