Sara Óskarsson, listakona og fyrrverandi varaþingmaður Pírata, segist ekki ætla að senda börn sín í skólann í þessari viku. Hún segir það glórulausa hugmynd að láta skólana koma saman á morgun.
„Rugl. Það kemur sprengja í smitum um leið, áramótasmitin eru fyrst að koma fram núna,“ segir hún á Facebook-síðu sinni í morgun en Sara skrifaði einnig grein um málið sem birtist á vef Vísis í gær og vakti talsverða athygli. Í pistlinum lagði hún til og mælti með að skólahaldi yrði frestað fram yfir bólusetningu yngsta hópsins.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir hún:
„Hver ætlar að bera ábyrgðina á því ef að spítalinn ræður svo ekki við álagið á næstu vikum? Verður það ríkisstjórnin? Sama ríkisstjórn og hefur á heilum tveimur árum enn ekki tekist að koma sérstakri Covid heilbrigðisstofnun á laggirnar? Né tekist að fjármagna almennilega það batterí sem fyrir er. Og sú sama og neitar nú að verða við ráðleggingum sóttvarnarlæknis um að fresta upphafi skólahalds um nokkra daga?“
Sara segir að lokum: „Ég býð ekki í þetta. Og mun EKKI senda börnin mín í skólann í þessari viku.“