Sár yfir eineltislegu gríni Péturs Jóhanns og Sveppa: „Ákaf­lega ósmekk­legt.“

Kári Friðriks­son, leigu­bíl­stjóri og tónlistarmaður, segist sár yfir ummælum grínistanna Péturs Jóhanns Sigfússonar og Sverris Þórs Sverrissonar, eða Sveppa, í hlaðvarpi þeirra félaga Beint í bílinn.

Í samtali við mbl.is í dag segir Kári að ummæli þeirra félaga í hlaðvarpinu, þar sem þeir gera grín að vaxtarlagi leigubílstjóra sem þeir sjá, vera beint að sér. Ummælin séu ósmekkleg og lýsi fitufordómum.

„Þetta eru tíu mín­út­ur af gríni um það hvað ég er feit­ur. Þetta er ákaf­lega ósmekk­legt,“ hefur mbl.is eftir Kára.

„Mér finnst þetta ómerki­leg fram­koma. Mér var sagt að þess­ir menn hafi báðir lent í einelti áður. Þeir hafa nú ekki lært mikið af því.“

„Eins og ein­hver sel­ur“

Ummælin sem um ræðir létu þeir félagar falla í þætti númer 21 af hlaðvarpinu. Í þáttunum setjast þeir saman upp í bíl, fara á rúntinn og taka upp spjall sitt á meðan. Í umræddum þætti keyra þeir niður Hverfisgötu og minnast svo á leigubílstjóra sem þeir mætt skömmu áður.

„Ef þú horf­ir ofan á þenn­an leigu­bíl­stjóra er hann ör­ugg­lega fer­metri,“ seg­ir Sveppi í hlaðvarp­inu og Pét­ur Jó­hann tek­ur und­ir með honum.

„Hann er all­ur svona kringl­ótt­ur,“ heldur Sveppi áfram. „Ef þú mynd­ir leggja hann niður væri hann eins og ein­hver sel­ur.“