Á föstudaginn hélt lögreglan á höfuðborgarsvæðinu út svokölluðu Löggutísti þar sem lögreglan tísti um útköll sín í rauntíma til að gefa fólki innsýn inn í störf lögreglunnar.
Eitt tístið vakti mikla reiði netverja en þá var lögreglan kölluð til í Nettó þar sem „ung kona“ væri þar að betla. Netverjar urðu æfir vegna málsins og velt fyrir sé hverjum dytti í hug að tilkynna um unga konu að betla.
Hringbraut fjallaði um málið en lögreglan svaraði netverjum af stóískri ró um að hún yrði að svara öllum útköllum.
Nú mætir hins vegar Laufey Ebba á twitter og greinir frá því að hún hafi nú þurft að hringja í lögregluna vegna þess að það er 17 ára gamalt barn sem hefur einungis verið á Íslandi í nokkra daga. Laufey ræddi við barnið sem sagði henni að hún væri ein hérna á Íslandi.
„Svona í alvöru, lítur maður bara fram hjá svoleiðis? Lætur maður einhvern vita? Tekur maður hana heim til sín? Er að spurja í alvörunni,“ skrifa Laufey sem sagðist hafa hringt í lögregluna.
Í athugasemd undir færsluna bendir einn á að konan sem hringdi upphaflega í lögregluna á föstudaginn hafi stigið fram undir löggutísti og sagt frá hinu rétta.
„Hið rétta er að ég tilkynnti um BARN að betla i 10 stiga frosti, með sama skilti og margir aðrir einstaklingar hafa haldið á þarna fyrir utan.“
Ætli þetta sé sama barnið? https://t.co/rextxnuXVu
— Fannar Api 🖤 (@fannarapi) December 21, 2022
Henrý Thor bendir netverjum á að það hvílir tilkynningarskylda þegar um barn er að ræða. Netverjar hefðu því mátt kannski spara reiðina gagnvart lögreglunni á föstudaginn sem kom barni í neyð til hjálpar.
Það er einmitt það sem ég hélt, var mjög hugsi yfir þessu en ákvað að hringja í lögregluna.
— Laufey Ebba (@Laufeyebba) December 21, 2022
Hægt er að lesa reiði netverja í frétt Hringbrautar hér.