Sannleikurinn á bak við háskaleik Rúriks í Brasilíu – Sjáðu myndirnar

Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og Instagram-stjarna, birti skemmtilega mynd á Instagram-síðu sinni í gær. Rúrik var þá staddur í Brasilíu ásamt kærustu sinni, fyrirsætunni Nathaliu Soliani.

Á myndinni virðist Rúrik hanga framan af klettasyllu og er engu líkara en að um mikinn háskaleik sé að ræða - eða kannski „háskasleik“ eins og sagði í frétt mbl.is. Var birt mynd af þeim Rúrik og Nathaliu þar sem þau kysstust meðan hann hékk á klettinum.

Rúrik skrifar við myndina að stundum þurfi maður bara að taka áhættu í lífinu.

Eins og sést hér að neðan er fallið af klettinum ekki mjög hátt, eða innan við tveir metrar. Kletturinn er í Brasilíu á vinsælum ferðamannastað, Pedra do Telegrafo, og hafa margir smellt af sér myndum við klettinn. Hér má sjá fleiri myndir af ferðamönnum bregða á leik á þessum sama stað.