Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra segist í viðtali á 21 í kvöld, sannfærður um að Alþingi samþykki á næstu dögum frumvarp hans um svonefnd hlutdeildarlán sem eru ríkisstyrkt lán fyrir efnalítið fólk til að kaupa fyrstu íbúð.
Alþingi kom saman í dag og fundar í viku, í svonefndum þingstubbi, og síðan verður þingi slitið og nýtt hafið í haust, þann 1.október.
Ásmundur Einar segir þessa nýjung á ríkislánum verða nú að veruleika þótt búist verði við að breytingar verði gerðar á frumvarpi um þau en margt hefur verið gagnrýnt af hálfu þingmanna utan og innan stjórnarflokka. Nefnd hafa verið lengd lánanna sem ætluð eru til 25 ára, óljóst jafnræði um hverjir eigi að fá úthlutað úr takmörkuðum sjóði, skilyrði að lántakendur noti skattfrjálsan séreignasparnað sinn líka, lánað sé eingöngu til nýbyggðra og „hagkvæmra“ íbúða og fleira. Frumvarpið er nú til meðferðar í velferðarnefnd Alþingis en nefndin mun afgreiða málið frá sér á morgun eða hinn að sögn ráðherra.
Ásmundur Einar mælti fyrir málinu í vor á þingi og sagði í júní sl, það vera „virkilega ánægjulegt að hlutdeildarlánin séu orðin að veruleika.“ Það gerðist ekki og málið kláraðist ekki á vorþinginu en Ásmundur segir að í þinglokasamningum hafið verið ákveðið að frumvarpið yrði afgreitt á þeim þingstubb sem nú stendur yfir.
Þótt gerðar verði margar breytingar á frumvarpinu segir Ásmundur Einar að fátt af gagnrýninni hafi beinst að sjálfum markmiðum frumvarpsins, grunnhugsun þess sem sé að koma til móts við fólk í húsnæðisvanda. "Það er bara þannig að þegar við erum að koma með stórar og róttækar breytingar í húsnæðismálum, sem var markmið þessarar ríkisstjórnar að gera og mitt sem ráherra í húsnæðismálum að gera þá er alltaf um það skiptar skoðanir og gagnrýnin kom bæði frá hægri og frá vinstri".
Lánin geta verið allt að 20 prósent af kaupverði og eru afborgunar- og vaxtalaus í 25 ár en eftir þann tíma hefjast afborganir eða fyrr ef íbúðin er seld. Ríkið yrði því „rólegur“ meðeigandi í allt að 25 ár. Þetta kemur fram í frumvarpinu og gagnrýnt er til dæmis að kaupendur verði illa settir eftir 25 ár að fást við viðbótarafborganirnar og tíminn ætti að geta verið lengri. Áætlaður kostnaður við úrræðið er 3,7 milljarðar á ári sem eru rúmlega 400 lán.