Sanna vill hætta að rukka börn fyrir þjónustu: „Byrjum að rukka ríkt fólk“

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalista, vill að fjármagnseigendur greið hluta af fjármagnstekjum sínum til sveitarfélaganna.

„Útsvar er það sem við greiðum af launum okkar til sveitarfélagsins sem við búum í. Fjármagnseigendur greiða hins vegar ekkert af fjámagnstekjum sínum til sveitarfélagsins. Útsvarið sem er veigamesti tekjustofn sveitarfélaganna er notað til uppbyggingar leik- og grunnskóla, fyrir menningarstofnanir, vetrarþjónustu, götulýsingu, sundlaugar og allt það sem sveitarfélögin sjá um,“ skrifar Sanna í aðsendri grein á Vísi.

„Áhersla stjórnvalda á að veita ríku fólki skattaafslætti leiðir til þess að gjaldtaka á sér stað þar sem hún ætti alls ekki að vera. Það kostar fyrir börn að borða í skólanum, það kostar fyrir börn að fara í sund, það kostar fyrir börn að fara í strætó. Nýjasta útspilið birtist okkur í því að strætó árskort barna á aldrinum 12-17 ára var hækkað frá 25.000 krónum upp í 40.000 þúsund krónur.“

„Hættum að rukka börn fyrir þjónustu sveitarfélaganna og byrjum að rukka fjármagnseigendur. Það er ekki eðlilegt að fólk sem hafi tekjur sínar að mestu leyti af fjármagni greiði lítið, jafnvel ekkert til sveitarfélagsins sem það býr í,“ bætir Sanna Við.

Hún segir það ekki rétt eða vera með afsláttarkerfi fyrir sum börn eða bjóða fátækum börnum upp á frían mat heldur á gjaldtaka ekki að fara fram innan veggja skólans.

„Við eigum ekki að senda ógreidda matarreikninga til innheimtufyrirtækja og leyfa þeim að hagnast á fátækt foreldra og forráðamanna. Við eigum ekki að búa til skólaumhverfi þar sem börn læra að sum megi borða og önnur ekki,“ skrifar Sanna og bendir á Finnland máli sínu til stuðnings.

En Finnar eru með gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

„Sameiginlegir sjóðir eiga að greiða fyrir þá þjónustu sem fer fram inni í skólanum og ástæða þess að þeir standa ekki nógu sterkt til að bjóða upp á gjaldfrjálsa þjónustu er vegna þess að hinir allra auðugustu eru undanþegnir því að greiða í sameiginlega sjóði. Lögum það.“