Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, rifjar það upp að í dag eru tuttugu ár síðan viðtal birtist við móður hennar, Mörtu Leósdóttur, á síðum Fréttablaðsins.
Sanna vekur athygli á þessu í Facebook-hópi Sósíalistaflokks Íslands, en hún var aðeins níu ára gömul á þessum tíma. Fyrirsögn greinarinnar var Mæðgur á götunni og sagði hún frá þeirri þröngu stöðu sem þær mæðgur voru í á sínum tíma.
„Fyrir tilviljun áttaði ég mig á því að það voru akkúrat 20 ár upp á dag síðan að þetta viðtal birtist, þá var ég níu ára,“ segir Sanna sem segist hafa hringt í móður sína þar sem hún er að undirbúa sig fyrir viðtal. Spurði hún hana hvað leigan hafði verið hátt hlutfall af ráðstöfunartekjum.
„Mig minnti að það hefði komið fram í viðtalinu og þarna var það. Leiga rúmlega 50.000. Útborguð laun um 110.000 fyrir meira en tíu tíma vinnudag, á þeim stað sem við bjuggum á þá. Þ.e.a.s. leigan var um 45% af ráðstöfunartekjum. Það er talið eðlilegt ef það er um 25% af ráðstöfunartekjum,“ segir Sanna en móðir hennar vann á leikskóla hjá Reykjavíkurborg og var líka að skúra.
„Ég get ekki ímyndað mér hvernig hennar líðan er eftir allt þetta en svo ég tali fyrir mitt leyti þá hef ég ekki fundið nógu sterkan plástur til að láta sár fátæktar gróa. Hversu mörg börn og foreldrar þeirra ætli séu í þeirri stöðu að búa ekki við öruggar húsnæðisaðstæður,“ spyr hún í færslu sinni.
Í viðtalinu við Mörtu kom fram að henni hafi verið sagt upp leiguíbúð sem hún greiddi rúmar 50 þúsund krónur fyrir á mánuði. „Ég hef verið að leita að leiguíbúð en það gengur ekkert að finna neitt á viðráðanlegu verði,“ sagði hún en sem fyrr segir kom fram hún fengi 110 þúsund krónur útborgaðar á mánuði fyrir rúmlega 10 tíma vinnudag.