Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon, borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins, gefa hvort um sig hundrað þúsund krónur af launum sínum mánaðarlega til Vorstjörnunnar, styrktarsjóðs sem styður við réttlætis- og hagsmunabaráttu hópa sem standa illa fjárhagslega.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Vorstjarnan sendi frá sér.
„Laun stjórnmálafólks eru of há á Íslandi og sósíalistar hafa lagt til að þau verði lækkuð,“ segir Sanna í tilkynningunni og bætir við: „Þar til okkur tekst að lækka launin almennt kjósum við að lækka laun okkar sjálfra með þessum hætti, flytja fé sem við fáum til persónulegra nota inn í hagsmunabaráttu fólks sem stendur miklu verr en við.“
Í tilkynningunni er bent á að styrkur borgarfulltrúanna sé samanlagt 2,4 milljónir króna á ári. Hann kemur til viðbótar við framlag borgarsjóðs til Sósíalistaflokksins, sem er rúmar 4,5 milljónir króna á ári, en flokkurinn færir þetta framlag inn í Vorstjörnuna. Samanlagt megi því rekja rúmlega 6,9 milljóna króna framlag í Vorstjörnuna til borgarstjórnarflokksins.
„Reykjavíkurborg styrkir flokka og stjórnmálafólk með þeim rökum að hún sé að örva lýðræðið í borginni. Með því að styrkja hagsmuna- og réttlætisbaráttu hópa sem eiga í erfiðleikum með að halda uppi sinni baráttu eflum við lýðræðið miklu betur en að eyða þessum peningum í sjálf okkur eða flokkinn,“ segir Trausti í tilkynningunni.
Þau Sanna og Trausti benda á að fátækt fólk reki sínar hagsmunabaráttu í samkeppni við þau sem hafa mikil fjárráð, ekki síst hagsmunasamtök auðugustu fjármagnseigendanna og allra stærstu eigenda allra stærstu fyrirtækjanna.