Sandra Hlíf Ocares, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni, setur stórt spurningamerki við stærð báknsins í Reykjavík. Segir hún í grein í Morgunblaðinu í dag að starfsfólki borgarinnar hafi fjölgað um 20 prósent á þessu kjörtímabili sem er að líða:
„Í barnslegri bjartsýni mætti ætla að þjónusta og upplýsingagjöf borgarinnar hefði batnað við allar þessar mannaráðningar, þar sem skrifstofustjóri er ráðinn yfir skrifstofustjóra, verkefnastjóri yfir verkefnastjóra og upplýsingafulltrúi yfir upplýsingafulltrúa – það er þó fjarri lagi,“ segir Sandra. Síðustu þrjátíu ár hafi borginni verið stýrt á Samfylkingunni.
„Á þeim tíma hafa skuldir vaxið gríðarlega, kerfið þanist út og starfsfólki fjölgað án þess þó að íbúar borgarinnar hafi orðið varir við bætta þjónustu eða upplýsingagjöf,“ segir hún.
„Á sama tíma hafa grunnskólar borgarinnar grotnað niður og myglað vegna viðhaldsleysis og ekki að sjá að yfirvöld hafi skeytt um heilsu barna eða starfsfólks skólanna. Biðlistar leikskólanna lengjast í borginni og á meðan flest sveitarfélög landsins setja sér markmið um að innrita börn á leikskóla við 12 mánaða aldur eða yngri setur borgin sér það viðmið að innrita börn um 18 mánaða aldur og auk þess gengur illa að fá starfsfólk.“
Vill hún lausnamiðaðri hugsun í stað þess að fjölga skrifstofustjórum.