Sandra sakar lögreglu og kjörna fulltrúa á Aukureyri um ómannúðlegar aðgerðir: „Vægast sagt ógeðslegt“

Sandra Ósk Jóhannsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, sem eru góðgerðarsamtök sem leita að týndum dýrum, vandar lögreglunni og kjörna fulltrúa á Akureyri ekki kveðjuna, og sakar þá um ómannúðlega framkomu í garð hunds og fjölskyldu hans.

Umræddur hundur beit mann, og í kjölfarið tók lögreglan hundinn og var hann svæfður. Fjölskyldan fékk að sögn Söndru ekki að kveðja hundinn, og þá lá enginn dómsúrskurður fyrir um aðgeðrir lögreglu.

„Það að lögreglan hafi tekið hund af heimili sínu án heimildar og að dýralæknir á Akureyri hafi aflífað hundinn, án þess að framkvæma skapgerðarmat, er vægast sagt ógeðslegt. Fjölskyldan fékk ekki einu sinni að kveðja heldur símhringingu þegar verið var að svæfa hann. Ómannúðlegt.“ skrifar Sandra á Twitter.

Hún fullyrðir að hundar eigi alltaf rétt á skapgerðarmati, sem umræddur hundur fékk ekki, og auk þess þurfi lögregla dómsúrskurð til að fjarlægja hundinn.

„Þetta eru stór brot á réttindum hundsins og fjölskyldunnar hans.“ segir Sandra. „Hundurinn beit í höndina á manni. Eitthvað sem hann hafði aldrei gert áður. Þetta var afleiðingin í stað skapgerðarmats.“

Þá segir Sandra að sveitarfélög og kjörnir fulltrúar innan þeirra hafi of mikið vald til að taka geðþóttaákvarðanir í þessum efnum.

„Sveitarfélög fá of mikið sjálfsákvörðunarvald yfir hundaeigendum og kjörnir fulltrúar geta tekið geðþóttaákvarðanir um hunda og hundaeigendur án nokkurs samráðs né kynningar. Kerfið okkar er rotið í drasl.“