„Það er eins og það sé búið að stela líkamanum mínum. Sit hérna skjálfandi,“ sagði Sandra Ósk Jóhannsdóttir háskólanemi í færslu á Twitter-síðu sinni í gær sem vakið hefur talsverða athygli.
Sandra fékk Covid-19 í maí síðastliðnum og glímir enn við talsverð eftirköst veikindanna. Í færslunni lýsti hún því hvernig hún missti skyndilega andann meðan hún var að keyra í gær. „Gríðarlegur þungi í lungunum og líður eins og súrefnismettunin sé ekki í lagi. Kom heim, fékk mér púst og pabbi gaf mér kvíðatöflu. Covid-eftirköstin eru ekki grín,“ sagði hún.
Veiktist í kjölfar hópsmits á Jörfa
Í samtali við Hringbraut sagði Sandra að hún hefði veikst af Covid-19 í stóru hópsmiti sem kom upp á leikskólanum Jörfa, en fyrrverandi kærasti Söndru var kokkur þar.
„Hann fékk hringingu á föstudeginum að starfsmaður á leikskólanum væri smitaður og ég fór strax í sjálfskipaða sóttkví með honum. Málið þróaðist þannig að fleiri greindust síðan smitaðir seinna um kvöldið og daginn eftir. Á sunnudeginum þá greindist fyrrverandi kærasti minn með Covid,“ segir Sandra sem fór í test á mánudeginum og greindist neikvæð.
„Hann fer þá á sóttvarnarhótel í einangrun meðan ég er í sóttkví, bjartsýn um að ná alla vega tveimur af þremur lokaprófunum mínum. Á fimmtudeginum verð ég mjög veik sem byrjar á hausverk og beinverkjum, sem þróast síðan út í að ég gat ekki staðið í lappirnar og var við það að missa meðvitund,“ segir hún og bætir við að faðir hennar hafi komið klukkan eitt eftir miðnætti aðfaranótt föstudagsins með Powerade og verkjalyf þar sem henni leið mjög illa.
Asnaðist til að harka af sér
„Daginn eftir fer ég í test og greinist jákvæð. Á þeim degi er ég enn gríðarlega veik og fæ mikla mæði. Ég missi andann oft vegna slíms sem var að renna niður í lungun og var með mikinn þunga í lungunum. Læknarnir höfðu gríðarlegar áhyggjur af mér og vildu koma að kíkja á mig því ég var með öll einkenni fyrir utan það að missa bragðskyn. Ég var meira og minna rúmliggjandi í 5 daga með ógleði og mikinn verk í lungunum,“ segir Sandra sem fékk reglulegar hringingar frá læknum sem vildu koma að kíkja á hana.
„Ég var mjög frek því ég vissi að ég myndi þá lenda á spítala með vökva í æð þar sem ég var mjög orkulaus og náði ekki að koma neinu í mig. Ég er með nálafóbíu þannig ég asnaðist til að harka þetta af mér. Ég var sem sagt mjög veik í nokkra daga en náði að jafna mig eftir 8 daga, eftir það var ég bara frekar slöpp og orkulaus,“ segir Sandra og bætir við að hún hafi ekki verið búin að fá bóluefni á þessum tíma, ekki frekar en aðrir í hennar aldurshópi.
„Það var allt enn í vinnslu að bólusetja eldra fólk og fólk í viðkvæmum hópum minnir mig.“
Tekur púst nánast daglega
Sandra stundaði íþróttir sem barn og hefur aldrei átt í neinum vandræðum með hreyfingu. Aðspurð segir hún að eftirköstin lýsi sér eins og hún sé búin að missa allt þol.
„Ég fæ gríðarlega verki í lungun eins og einhver sé að stíga á mig og ég næ ekki að anda vel. Ég tek púst nánast daglega vegna verkja og erfiðleika við að anda. Svo í gær gerðist það að ég missti andann eins og gerðist þegar ég fékk Covid. Það var enginn aðdragandi. Þetta var svo hræðileg upplifun og tilfinning að pabbi gaf mér kvíðalyf eftir þetta. Það hjálpaði smá með hræðslutilfinninguna.“
Hún segir að þessi einkenni, það er þungi í lungum, geti komið fram við allskonar aðstæður en einna helst ef mengun er mikil í loftinu.
„Það er til dæmis mikið búið að vera um gosmóðu vegna eldgossins í sumar og þá hef ég haldið mig inni því ég fæ gríðarlega mikinn verk í lungun. Ég er mjög viðkvæm núna fyrir mengun. Ég fæ líka mikinn verk í lungun ef ég reyni eitthvað á mig, eins og til dæmis þegar ég er að labba upp brekkur.“
Þrekið og þolið er því talsvert minna en það var áður og nú, rúmum þremur mánuðum eftir veikindin, á hún enn nokkuð í land að ná fyrri styrk.
„Þegar ég losnaði úr samtals 3 vikna sóttkví og einangrun þá varð ég móð eftir að hafa labbað einn gang í Krónunni. Mér leið eins og algjörum aumingja að geta ekki labbað. Enn daginn í dag verð ég móð ef ég geri eitthvað aðeins krefjandi, eins og að labba upp stiga eða brekkur,“ segir hún.
Sendir skýr skilaboð vegna bólusetninga
Aðspurð hvort hún sé með einhver skilaboð til þeirra sem tala um að veiran sé eins og hvert annað kvef eða flensa, segir hún:
„Mér finnst þetta svo gríðarlega mikil fáfræði og gerir lítið úr þeim sem urðu mjög veikir, eða jafnvel úr þeim sem hafa dáið. Covid er ekki eins og hvert annað kvef eða flensa. Covid getur lagst hrikalega illa í fólk, jafnvel ungt, heilbrigt fólk eins og mig og gert gríðarlegan skaða. Covid-eftirköstin eru mjög raunveruleg og mikið vandamál hjá mörgu fólki. Ég vona að mín saga hjálpi fólki að skilja hversu mikilvægt það sé að bólusetja sig og sýna samfélagslega ábyrgð. Það er búið að sanna með rannsóknum að bóluefnin minnki oft einkenni hjá fólki ef það skyldi smitast af Covid. Ég vildi að bóluefnin hefðu verið aðgengileg áður en ég fékk covid, þá hefði ég kannski ekki orðið svona hrikalega veik og enn verið að takast á við afleiðingarnar mánuðum eftir veikindin.“