Sandra fékk ótrúlegt símtal í gær: „Þessir strákar sem fundu hann eru algjörir englar“

Sandra Ósk Jóhannsdóttir, sálfræðinemi í HÍ og sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, segir á Twitter-síðu sinni frá býsna mögnuðu símtali sem hún fékk frá tveimur ungum strákum í gær.

„Ég fékk símtal frá tveim ungum strákum um kaldan kött sem þeir fundu á Vesturlandsvegi. Freyja fór að skanna og hringdi í eiganda. Hann er búinn að vera týndur í ÞRJÚ ÁR. Hann er á leiðinni heim til sín í Grafarvoginn,“ segir Sandra í færslu sem birtist í gærkvöldi.

Hún bætir við að kötturinn sem um ræðir sé fæddur árið 2007 og því að verða 16 ára gamall.

„Hann er mjög slappur og var að halda sér hita með því að liggja ofan á ræsisloki. Hefði eflaust ekki lifað af nóttina í kuldanum.“

Sandra hrósar drengjunum ungu sem fundu köttinn og höfðu samband. „Þessir strákar sem fundu hann eru algjörir englar!“