Samverustund í Blönduóskirkju í gærkvöldi: Íbúar margir með tárin í augunum

Mikil sorg ríkir á Blönduósi eftir að byssumaður skaut konu til bana og særði eiginmann hennar lífshættulega á heimili þeirra snemma að morgni sunnudags. Sonur hjónanna varð byssumanninum að bana eftir að hann varð var við hann í húsinu.

Lokaður upplýsingafundur lögreglunnar og annarra viðbragðsaðila svæðisins fyrir íbúa á svæðinu var haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi í gærkvöldi. Að þeim fundi loknum var boðið upp á sálrænan stuðning og samveru í Blönduóskirkju.

Í frétt Morgunblaðsins í dag kemur fram að málið hafi fengið mjög á íbúana. Hljóðlátt hafi verið í bænum í gær og margir bæjarbúar sjáanlega verið í áfalli. Víða mátti sjá fána dregna í hálfa stöng.

Í frétt blaðsins kemur fram að margir hafi farið í Blönduóskirkju í gærkvöldi og eru margir íbúar sagðir hafa verið með tárin í augunum þegar þeir gengu í kirkjuna.

Morgunblaðið hefur eftir Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra að margt þurfi að skoða eftir þennan sorglega atburð, til dæmis vistunarúrræði og eftirlit með skotvopnum. Hann sagðist ekki tjáð sig beint um atburðina í gærmorgun að öðru leyti en að votta hlutaðeigandi hluttekningu sína.