Sam­tök um líkams­virðingu láta Kára Stef heyra það: „Fitu­for­dómar undir þeim for­merkjum að við séum að bæta heilsu“

Samtök um líkamsvirðingu hafa svarað Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og segja honum að rann­sóknir sýni að megrunar­lyf valdi al­var­legum auka­verkunum.

„Sýnir saga megrunar­lyfja okkur að inn­grip af þessu tagi koma ekki til með að vera með­ferðar­úr­ræði til lengri tíma fyrir þorra fólks. Orð­ræða Kára lýsir í raun ó­trú­lega vel þeim sam­fé­lags­legu við­horfum sem eru ríkjandi í nú­tímanum. Það er að segja, við sam­þykkjum fitu­for­dóma undir þeim for­merkjum að við séum að bæta heilsu, í stað þess að við séum í raun að jaðar­setja fólk. Jaðar­setning sem leiðir til verra heilsu­fars,“ segir í yfir­lýsingu sam­taka um líkams­virðingu.

Kári fagnaði því í Frétta­blaðinu í gær að notkun á megrunar­lyfjum hefur tí­faldast hér á landi. Hann sagði Sam­tök um líkams­­virðingu úti í mýri í um­­ræðunni um lyfin og segir of­­fitu stærsta heil­brigðis­vanda­­mál sam­­tímans.

„Þetta er alveg furðu­­legt við­­tal í Frétta­blaðinu því að það ber öllum saman um að of­­fita sé mesta heil­brigðis­vanda­­mál í vest­rænum sam­­fé­lögum,“ sagði Kári um við­tal blaðsins við Vil­borgu Kol­brúnu Vil­mundar­dóttur, næringar­fræðing og stjórnar­konu í Sam­tökum um líkams­virðingu.

„Of­­fitu fylgir gífur­­lega aukin hætta á hjarta­bilun, lifrar­­skemmdum, sykur­­sýki full­orðinna, kæfis­vefni, slit­gigt hjá ungu fólki og alls­­konar krabba­­meinum. Það sem meira er að það er bók­staf­­lega línu­­legt sam­band milli of­­fitunnar og þeirra mæli­kvarða sem eru notaðir á of­­fitu og hættunnar af þessum sjúk­­dómum. Þannig það fylgir þessu gífur­­leg á­hætta,“ bætti Kári við.

„Gjör­­sam­­lega út í mýri“

Kári sagði jafn­framt að búið væri að sýna fram á með eð hjá­veitu­að­­gerðum að það að léttast auki lífs­líkur. „Það er bók­staf­­lega búið að sýna fram á að það fólk sem hefur komist burt úr þessari of­­fitu með rót­tækum að­­gerðum, að það lengir líf um­­tals­vert,“ segir Kári.

„Þannig að þessar stað­hæfingar hjá stjórnar­­með­limnum, hún segist hafa fylgst vel með en ég veit ekki hvað hún hefur lesið, því hún er alveg gjör­­sam­­lega út í mýri þegar að þessu kemur.“