Samskip bæta við skipum til eystrasaltsins

Samskip mun hefja nýja siglingaleið með auknum tengingum við Eystrasaltslöndin. Siglingarnar verða vikulega, en með henni er bætt við viðkomustöðum í flutningakerfi Samskipa í Evrópu með tengingum við siglingar til og frá Íslandi.

Lagt verður upp á nýrri siglingaleið frá Reykjavík á miðvikudögum. Fyrst er siglt til Cuxhaven í Þýskalandi, með viðkomu í Vestmannaeyjum og Færeyjum, og þar með tengingu til Gdansk í Póllandi og svo áfram til Klaipeda í Litháen. Á bakaleiðinni er svo siglt til Ósló í Noregi, áður en haldið er til Árósa í Danmörku með tengingu til Íslands á ný.

Þá er mikill innflutningur frá Eystrasaltslöndunum og tækifæri honum tengdur. Þar má nefna margvíslega byggingavöru, húsgögn, umbúðir, framleiðsluvörur og annan almennan neytendavarning. Tvö skip munu sinna siglingum á nýju siglingaleiðinni. 

„Við sjáum mikla vaxtarmöguleika fyrir bæði innflutning og útflutning með þessari bættu tenginu við Eystrasaltið. Með milliliðalausum flutning innan okkar siglingakerfis er ávinningur á hverjum viðkomustað með tengingum við víðtækt flutningsnet Samskipa innan Evrópu. Þá er viðbótarávinningur í beinum innflutningi frá Noregi til Íslands innan siglingakerfis Samskipa á Íslandi. Við höfum unnið að þessari siglingaleið í nokkra mánuði til að bæta áreiðanleika og þjónustu við viðskiptavini okkar,segir Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa