Samsæriskenningar á lofti eftir að viðtalið við Jóhannes datt skyndilega út

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, ræddi við Jóhannes Stefánsson, uppljóstrara í Samherjamálinu og fyrrverandi starfsmann fyrirtækisins, í beinni útsendingu í dag.

Viðtalið, eða streymið, var sent út á Facebook, Twitch, Vimeo og YouTube en þeir sem horfðu á það tóku vafalítið eftir truflunum sem komu þegar rúmur hálftími var liðinn. Viðtalið datt svo alveg út og reyndist það þrautin þyngri að koma útsendingunni aftur í loftið.

„Við skiljum alls ekki hvað er að ske með útsendinguna okkar. Við erum með topp græjur, topp net en allt í hassi. Það er verið að vinna að því mjög hröðum höndum að finna lausn á þessu rugli!,“ sagði Þórhildur Sunna á Facebook-síðu sinni.

Ef marka má þær upplýsingar sem komið hafa fram í umfjöllunum Kjarnans og Stundarinnar að undanförnu hafa starfsmenn Samherja – eða einstaklingar tengdir fyrirtækinu – beitt ýmsum brögðum til að ná sínu fram.

Hefur þeirri kenningu verið fleygt fram að hugsanlega hafi einhver á vegum Samherja reynt að trufla útsendinguna. Eva Pandóra Baldursdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, sagði til dæmis undir færslu Þórhildar Sunnu:

„Ok þetta er kannski of langt seilst í samsæriskenningunum hjá mér en miðað við það sem fram hefur komið þá kannski ekki... gæti verið að Samherji standi á bakvið þessar truflanir?“

Þá segir annar undir færslunni: „Samherji með árás???“

Fleiri athugasemdir eru í svipuðum dúr: „Um leið og spurningar voru teknar fyrir. Voru margar góðar spurningar í spjallkerfinu. Fær samsærishugsanir í gang.“

Hér að neðan má sjá útsendinguna þar til hún datt út: