Samkynhneigðum dreng ítrekað sagt að drepa sig vegna kyn­hneigðar

Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð Reykjavíkur hefur miklar áhyggjur af stöðu hinsegin barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar með hliðsjón af nýlegum frásögnum af aðkasti sem umræddur hópur verður fyrir.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.Á fundi ráðsins eru sagðar nokkrar dæmisögur af þeim veruleika sem hinsegin ungmenni verða fyrir.

„Samkynhneigður drengur fékk ítrekað skilaboð um að hann væri ógeðslegur og ætti að drepa sig. Móðir hans hafði samband við foreldra geranda sem annað hvort sögðu að þau réðu ekkert við börnin sín eða könnuðust ekki við að börn þeirra gætu hegðað sér svona,“ hljómar ein sagan.

Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.

Glímir þú við sjálfs­víg­hugsanir ráð­leggjum við þér að ræða málin við sér­þjálfaða ráð­gjafa Rauða krossins í hjálpar­símanum, 1717, eða á net­spjalli Rauða krossins. Einnig reka Píeta samtökin gjaldfrjálsa þjónustu fyrir fólk í sjálfsvígshættu, sem glímir við sjálfsvígshugsanir og aðstandendur þeirra.