Samherji og Ríkisútvarpið aftur í hár saman: Segja ómögulegt fyrir RÚV að „fjalla á hlutlægan og heiðarlegan hátt“ um mál Samherja

Úgerðarfélagið Samherji þvertekur fyrir það að skattrannsókn sé hafin á hendur félagsins í Færeyjum en Ríkisútvarpið greindi frá því fyrr í vikunni að færeysk skattayfirvöld hafi formlega hafið rannsókn á mögulegum skattalagabrotum Samherja í Færeyjum.

Samherji krefst þess nú að fréttirnar verði leiðréttar en þau segja að Eyðun Mørkør, yfirmaður færeyska skattsins, sem RÚV byggði einnig sína frétt á, hafi staðfest að engin slík rannsókn væri hafin.

„Fréttir Ríkisútvarpsins í gær um skattrannsókn í Færeyjum eru því rangar og byggja á rangtúlkun og útúrsnúningi á ummælum Mørkør í viðtali við Kringvarp Føroya,“ segir í tilkynningu frá Samherja um málið.

„Þess skal getið að fréttastofa Ríkisútvarpsins leitaði ekki eftir sjónarmiðum eða afstöðu Samherja áður en umræddar fréttir voru birtar,“ segir í tilkynningu Samherja. „Fréttastofa Ríkisútvarpsins braut gegn eigin vinnureglum með því að gefa Samherja ekki möguleika á andsvörum áður en þessar fréttir voru birtar.“

Mikil átök hafa verið milli Samherja og Ríkisútvarpsins frá því að greint var frá viðskiptum Samherja í Namibíu í fréttaþáttinum Kveik í nóvember 2019. Samherji hefur ítrekað sett út á fréttaflutning Ríkisútvarpsins í kjölfarið.

Samherji segir vinnubrögð Ríkisútvarpsins í vikunni vera í takt við fyrri umfjallanir. „Ítrekaðar aðfinnslur við vinnubrögð fréttastofunnar hafa engu skilað og virðist henni ómögulegt að fjalla á hlutlægan og heiðarlegan hátt um málefni Samherja eins og fjölmörg dæmi sanna.“

Frétt RÚV frá því í gær er enn óbreytt.