Sam­herji kærir ellefu starfs­menn RÚV

Lög­maður Sam­herja hefur lagt fram kæru fyrir siða­nefnd Ríkis­út­varpsins á hendur ellefu frétta- og dag­skrár­gerðar­mönnum RÚV. Þetta kemur fram á vef Sam­herja en þar segir að á­stæðan sé „þátt­taka þeirra í þjóð­fé­lags­um­ræðu“ um mál­efni Sam­herja á sam­fé­lags­miðlum.

Í til­kynningu Sam­herja er vísað í siða­reglur Ríkis­út­varpsins þar sem segir:

„Starfs­fólk, sem sinnir um­fjöllun um fréttir, frétta­tengt efni og dag­skrár­gerð tekur ekki opin­ber­lega af­stöðu í um­ræðu um pólitísk mál­efni eða um­deild mál í þjóð­fé­lags­um­ræðunni, þ. á m. á sam­fé­lags­miðlum.“

Á vef Sam­herja segir:

„Öll þau til­vik sem fjallað er um í kærunni varða starfs­menn Ríkis­út­varpsins sem sinna um­fjöllun um fréttir, frétta­tengd efni og dag­skrár­gerð. Í færslum þeim, sem starfs­mennirnir birtu á sam­fé­lags­miðlum og fjallað er um í kærunni, tóku þeir af­stöðu í um­ræðu um mál­efni Sam­herja. Er þar einkum um að ræða mál vegna á­sakana sem settar voru fram vegna starf­seminnar í Namibíu og hið svo­kallaða Seðla­banka­mál en einnig ýmis önnur mál sem tengjast Sam­herja með beinum og ó­beinum hætti. Má þar nefna eignar­hald fyrir­tækja í sjávar­út­vegi og eignar­hald á hluta­bréfum í Eim­skip.“

Haft er eftir Þor­steini Má Bald­vins­syni á vef Sam­herja að í sumum til­vikum sé um marg­í­trekuð brot að ræða.

„Þá virðist hópur manna, sem starfa við fréttir og dag­skrár­gerð, hafa haft saman­tekin ráð um að skaða orð­spor Sam­herja. Af þessu er aug­ljóst á Sam­herji á engan mögu­leika á því að fá hlut­lausa um­fjöllun hjá Ríkis­út­varpinu,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, í tilkynningunni.

Meðal þeirra sem eru kærðir eru Helgi Seljan, Þóra Arnórs­dóttir, Sig­mar Guð­munds­son, Aðal­steinn Kjartans­son, Freyr Gígja Gunnars­son, Lára Ómars­dóttir og Rakel Þor­bergs­dóttir, frétta­stjóri RÚV.