Pistlahöfundurinn Sif Sigmarsdóttir fer hörðum orðum um stórfyrirtækið Samherja og Brynjar Níelsson í pistli dagsins í Fréttablaðinu. Þar líkir hún Samherja og árásum fyrirtækisins gegn blaðamönnum við Vísindakirkjuna og viðbrögðum við gagnrýni.
Í pistlinum fer hún yfir sögu Vísindakirkjunnar og meðferð hennar gegn einum fremsta rannsóknarblaðamanni Bretlands sem gerði fréttaskýringaþátt um kirkjuna árið 2007.
„Þegar John Sweeney hóf að búa til fréttaskýringaþátt um Vísindakirkjuna upphófst ekki aðeins skipulegt átak til að hræða hann. Vísindakirkjan fór einnig í herferð til að sverta mannorð hans. Myndskeiðið af Sweeney þar sem hann öskrar á kvalara sinn varð uppistaðan í „heimildarmynd“ sem kirkjan framleiddi. Í myndinni voru Sweeney og teymi hans sögð brjóta verklagsreglur BBC. Myndinni var komið til yfirmanna Sweeney og afhent breskum þingmönnum á DVD diskum.“
Sif segir meðferðina langt frá því að hafa verið handahófskennda. Það hafi verið opinber stefna kirkjunnar að ráðast harkalega gegn þeim sem gagnrýndu hana, með öllum ráðum. Stefnan beri heitið réttmæt skotmark (e. fair game). Því næst rifjar Sif upp viðbrögð Samherja við Namibíumálinu.
En stjórnunarstefnan „réttmætt skotmark“ er ekki það eina sem Samherji og Vísindakirkjan eiga sameiginlegt. Þingmaðurinn Brynjar Níelsson fann sig á dögunum knúinn til að brýna fyrir landsmönnum mikilvægi Samherja sem hann kvað „öflugt fyrirtæki“ sem gerði „mikil verðmæti úr auðlindum okkar,“ skrifar Sif.
Hún segir Samherja ekki aðeins útgerðarfyrirtæki, heldur sértrúarsöfnuð. Rétt eins og Vísindakirkjan byggi Samherji tilvist sína á trú fólks á helberan uppspuna.
„Samherji segist breyta vatni í vín. En uppspretta verðmætanna sem Brynjar talar um er ekki milliganga Samherja heldur fiskurinn í sjónum.
Það verður ekki fyrr en við látum af trúnni sem ægivaldi költ-leiðtoganna linnir.“